fimmtudagur, nóvember 19, 2009

30 ára

Á laugardag var haldið partý fyrir háværa fólkið niðrí Dverg. Í víkingastíl að sjálfsögðu.


og já...það var Víst gaman....sjáið okkur bara brosa!



Svo fekk maður nottulega pakka....sem voru skoðaðir vel og vandlega......



.... í bak og fyrir

Hér verður myndasýningu úr víkinga partýi lokið til að hræða ekki viðkvæmar sálir!

Á sunnudag var kökukaffi fyrir vini og ættingja.


Kökurnar tilbúnar!



Húnbogi tilbúinn!



Gestirnir....eða hluti af þeim allavega.


Írena lét það sko ekki fara á milli mála að hún Á ömmu!



ömmurnar að rífast um Húnsa......
neeeeee.....lítur bara þannig út.


Húnsi orðinn þreyttur á öllu þessu fólki og kúrði bara hjá afa og bangsa.

Bara mjög vel heppnuð veisla fannst mér......og fekk líka eitthvað upp úr krafsinu ;)

Hlín hin síunga

sunnudagur, nóvember 15, 2009

Ammæli

Égáammælídag
égáammælidag
égáammælídagúnHlííín......og Elín
égáammæídag!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Myndir koma á morgunn!

mánudagur, nóvember 02, 2009

sökudólgurinn fundinn!

Ætlaði að senda Húnboga í leikskólan í dag. Var farinn að borða og drekka og ekkert búin að gubba í sólarhring. En um kvöldið þegar hann var kominn upp í rúm gubbaði hann allt út. ALLT. Og gubbaði nokkrum sinnum eftir það. Ég varð líka aftur eitthvað slöpp í maganum.

Það voru kannski skinkuhorn sem eru búin að vera í frysti frá því sumar sem ollu einhverju af þessu. Skinkuhorn sem var búið að frysta, og þýða....og frysta aftur....oooooooog svo þýða, og éta.

Ég fekk mér samt engin skinkuhorn þannig að ég er bara með þessa venjulega gubbupest. Húnbogi hefur líka bara verið með þessa venjulegu pest, jafnaði sig svo....en fekk svo skinkuhorn, og eitthvað verið viðkvæmur ennþá maginn.

Ég hef ákveðið að þetta sé allt Helga að kenna............

sunnudagur, nóvember 01, 2009

Fyrsta klippinginn

Ég ætlaði reyndar ekki að klippa hann fyrr en um jólin en hugsaði með mér að ef þetta mislukkaðist þá hefði hann allavega tæplega 2 mánuði til að safna.
Tók lokkinn að framan og aftan....setti skottið í teyju og geymi. Snyrti svo í hliðum og stytti aðeins oná hausnum.

Hann var bara nokkuð þægur á meðan á þessu veseni stóð.


nokkuð sáttur bara.


Vangasvipur


Hnakkinn.


Annars er það að frétta að við Helgi vorum bæði eitthvað slöpp í gærkvöldi.....Helgi gubbaði samt bara einu sinni og var góður eftir það....Ég tók þetta hinsvegar með trompi...eyddi deginum og nóttinni í gubb og niðurgang og var með smá hita. Fengið þessa leikskólapest frá Húnboga. Var samt orðin góð um morgunninn. Húnbogi er orðinn hress og fer í leikskólan á morgunn.

Aðeins 2 vikur í 30 ára ammælið mitt. Er búin að panta miða á Broadway 13 nóv á Michael Jackson tribute sýninguna. Smá stelpudjamm þá. 14 nóv verður svo alsherjar partý og fyllerí. Og svo er planið að eyða þynnkunni á sjálfum ammælideginum þann 15 nóv og bjóða skyldmennum í gos og kökur. Kaffi verður líka til fyrir gikkina

p.s Nýtt myndskeið hér til hliðar

Hrafnkell í heimsókn.

Hrafnkell kom og heilsaði upp á Húnboga einn laugardaginn.

Hrafnkell fekk að prófa þríhjólið hans Húnboga á meðan Húnbogi faldi sig


Hrafnkeli fannst líka gormurinn agalega spennandi.


...............og Húnbogi hló dátt