mánudagur, janúar 17, 2011

Stór afmælishetja

Afmælisdagur Húnboga er í dag. Orðinn 3 ára. Veislan var haldinn 5 janúar til þess að sem flestir kæmust en nokkrir frá útlöndum voru á landinu á þessum tíma. Það var heljar mikið stuð og flottar kökur. Það var kúrekaþema og Húnbogi var sjálfur fógetinn.


veisluborðið og kræsingarnar.


Borðað af bestu list


ís í brauðformi sló í gegn.

Ég fór í leikskólan með Húnboga í morgunn en fékk svo hringingu um hálf 11. Húnbogi hafði dottið (á stein halda fóstrurnar) og fékk sár á vörina sem þær vildu að ég léti kíkja á. Við fórum upp á Sólvang og þar vildi læknirinn setja 1 spor. Ákveðið var að deyfa ekki þar sem stungurnar eru eiginlega jafn vondar og saumasporið. Hjúkkurnar bjuggust við miklum látum og aukahjúkka var kölluð inn til að halda honum. Ein hélt hausnum, önnur löppunum, ég hélt höndunum og læknirinn tók sporið. Það heyrðist ekki múkk í Húnboga og hann lá alveg kjur. Táraðist reyndar en ekki meira en það. Þegar allt var búið og hann sestur upp ætlaði hann að taka þetta óþægilega saumadrasl af vörinni. En það mátti hann ekki og þá brotnaði hann niður og fór að gráta. Hjúkkunum fannst hann vera mikil hetja og mér líka.

Ég sótti hann svo á leikskólan og hann fékk að versla kvöldmatinn sjálfur. Hann valdi gult skyr, græn vínber, kókómjólk, súkkulaðisnúð og smá bland í poka.


Við sungum fyrir Húnboga og kveiktum á afmæliskertum.


og hér er svo sárið á vörinni.

mánudagur, janúar 03, 2011

Bakstur

2 dagar í afmælisveisluna hans Húnboga og skelltum við því í eina köku saman. Mjög gaman og verður örugglega mjög gott líka ;9


Allt tilbúið í baksturinn.....


Húnboga fannst þetta ekki líta nógu vel út svona.....


Hræra vel með hrærivél


Deigið komið í mótin og hjálparkokkurinn leggur lokahönd á verkin.


Stoltur með fyrstu kökuna sína!

jól 2010

Jæja, jól og áramót að baki og afmælisveisla Húnboga og þrettándinn framunda.
Jólin voru mjög góð, maturinn frábær ( og sérstaklega vel soðið kjötið ;))
Rafmagnsleysi skall á hálf 6, einmitt þegar var verið að elda sósuna og undirbúa kjötið fyrir ofninn. Varði í allavega hálftíma og þurfti að kalla út orkuveituna. Sökudólgurinn var konan fyrir neðan og eldavélin hennar. Spennandi tími.
Húnbogi var spenntur fyrir pökkunum og var ekki eigingjarn á að deila þeim út, flestir þó ekki til réttra eigenda en það reddaðist á endanum.
Áramótunum eyddu við upp í Mosó með allri fjölskyldunni...kynntist nýja frænda mínum honum Alfreði, Írena og Húnbogi létu eins og þau hefðu bara aldrei farið hvort frá öðru. Léku sér og rifust til skiptis. Haldin voru Litlu Jól og dansað í kringum jólatréið. (Hlaupið í sumum tilfellum) En því miður eins og svo oft áður þá gleymdum við myndavélinni heima.


Stúfur mættur til byggða í gulu vetlingunum sínum....


Pakkarnir opnaðir....þessi hitti í mark með gula namminu í innstu dósinni.


Milli jóla og nýárs. Slappað af yfir nýju teiknimyndunum og í nýju fötunum. Já! Tumi Tígur fékk líka ný föt í jólagjöf.


Nokkuð lunkinn við nýja púslið....


Hlustað á geisladiskinn sinn í nýja útvarpinu sínu.