fimmtudagur, júní 09, 2011

er á lífi sko........

Hef bara ekki nennt að skrifa...ekki margt að gerast til að segja frá. Bara þetta venjulega. Vinna, sofa og einstaka djamm...............

Er að klára hálfs árs kortið mitt í bootcamp og ætla nú að fjárfesta í árskorti. Mæling verður í næstu viku og ég er gaaasalega spennt hvort ég nái takmarkinu mínu 19 %. Er samt ekki búin að vera dugleg í mataræðinu. Nammi dagar eru orðinr fleyri en 1 í viku allavega......
En ég mæti á hverja einustu æfingu nema ef eitthvað kemur upp á, sem er nú ekki oft. Mér finnst nú líka pínu gaman að spenna vöðvana fyrir framan spegilinn og sjá kúlurnar vaxa ;)
Sumarfríð mitt hefst næstu mánaðarmót og ég byrja fríið á Útlandaferð til Brussel að hitta Elluskellu og afkvæmi.... jú og Timme líka....Húnbogi og Helgi koma að sjálfsögðu með.

Í júlí byrjar svo okkar fyrsta glasameðferð svo ég vil bara strax koma á framfæri afsökunarbeyðni á skapinu. Slökkt verður á hormónakerfinu og ég byrja á "tíðarhvörfum". Svo verður því sparkað í gang með látum..... Svo ég veit ekkert við hverju má búast. Býst samt við miklum skapsveiflum. Látið ykkur ekki bregða ef Helgi vill fá næturgistingu hjá ykkur! Ferlið getur tekið 4 til 6 vikur. Veit bara að ég er mjög spennt fyrir þessu og er viss um að nú muni þetta koma..... Ekki seinna vænna. Húnbogi er farinn að óska eftir bróður....