Víkingahátíðnn var í kringum 17 jún eins og venjulega og fengum við mjög gott veður þá daga. (auðvitað)
Helgi á ekki roð í Húnboga hinn Bjarta!
Írena og Húnbogi hittast og var eins og enginn tími hefði liðið síðan síðast.
Húnbogi unni sér vel í pilsinu.
Írena les fyrir Húnboga. Seinni nætur voru þó ekki eins friðsælar þar sem þau sökuðu hvort annað að sparka.(Gerðu það í svefni) Endaði með því að þau vildu alls ekki sofa saman, ekki einu sinni í sama herbergi
Fórum á náttúrusafn, hlustuðu með athygli á franska þulinn.
Oft held ég að fólk hafi haldið að þau væru tvíburar, þegar maður leiddi þau bæði horfði fólk og brosti.
Hættiði svo bara að segja að ég sé stór!!
bangsarnir skoðaðir, Húnbogi minnir á dádýr í bílljósum....
Dótabúðinn könnuð í bak og fyrir og dótið prófað.
Takið eftir kuldaskónum sem Írena er í... já, hún réð þessu víst sjálf.
Húnbogi komst í málningu þegar hann átti að vera sofnaður.
Ótrúlegt en satt fór ekkert í sængurfötin.....
smá sýking í auga, Alfreð var líka með smá.
Alfreð veikur og fékk því ekki að koma með á ströndina.
Helgi fékk að passa. (Veitir ekki af að halda sér í æfingu)
Mættur á ströndina í 25 stiga hita og með heiðskýran himinn.
Það var fjara þegar við komum,
Húnbogi var doldið smeikur við sjóinn, og ég mátti ekki einu sinni vaða út í, hann hljóp á eftir og togaði mig að landi og var með grátstafinn í kverkunum. Írena er aðeins vanari svona ferðum.
Á leiðinni heim spurði ég afhverju hann væri hræddur við sjóinn. Svarið var :sjórinn er svo rosalega stór.
Ingi Afi kom í heimsókn og eyddi einu kvöldi með okkur.
Funland held ég að þessi staður hafi heitið.
Boltar, loftkastalar og þrautavölundarhús....
Á fullu í gegnum völundarhúsið.
Svakalegt stuð í rennibrautinni.
Lætinn voru svo mikil þarna í krökkunum að þau voru kófsveitt og hárið rennblautt.
Dótið skoðað sem Húnbogi valdi sér.
Koddaslagur með Timme.
Moskítóflugurnar voru vægðarlausar, enda svaf ég við galopinn gluggan.
Ég bólgna soldið mikið og eftir því sem leið á ferðina urðu bitin (eða allavega viðbrögðin við bitunum) verri. Óþolandi kláði og mikil bólga í kring.
Húnbogi og Írena leku sér mikið en áttu það til að stríða hvort öðru soldið. Það er nú stutt í að þau hittist aftur því þau koma hér í Ágúst.