Jæja. Ég byrjaði að bæla 11 júlí. Það var frekar einfallt ferli. 1 sprauta á dag og töflur til að starta blæðingum. Bælinginn slekkur á hormónakerfi eggjastokkanna og í raun ertu á breytingarskeiðinu með öllum þeim skemmtilegu fylgikvillum. Fór svo í fyrstu skoðun 27 júlí, þá nýbúin á túr. Allt leit vel út, slímhúðin þunn og fín og engar blöðrur á eggjastokkunum. Grænt ljós gefið á örvun eggjastokka. Nú bættist önnur sprauta við. Lyf sem startar hormónaframleiðslunni, bara í meiri mæli en náttúrulega. Fékk mikla hausverki á þessu stigi. Byrjað á frekar lágum skammti af lyfi og skoðun 2 ágúst. Allt frekar rólegt og enginn eggbú byrjuð að myndast. Lyfjaskammturinn stækkaður og skoðun 5 ágúst. Eggbú byrjuð að myndast. Halda áfram á sama skammti og skoðun 8 ágúst. Mjög mörg eggbú koma í ljós en öll óþroskuð. Læknir telur að líkur séu á oförvun. Halda áfram að sprauta og skoðun 10 ágúst. Enn mjög mörg eggbú, nokkur þroskuð, önnur ekki. Enn grunur á oförvun en ekki staðfest. Eggheimta ákveðin að verði á föstudeginum 12 ágúst. Síðasta örvunarsprautan og svo miðnætursprautan sem stjórnar egglosi. Ákveðið að ég eigi að halda áfram að bæla þar til oförvun hefur verið staðfest.
Eggheimtudagur: Mæti klukkan hálf 9 með Helga sem skilar inn sæði. Æðaleggur settur upp, fæ verkjalyf og kæruleysispillu. Svo er beðið eftir að röðin komi að mér. Fæ morfín í æð og er staðdeyfð. Fáum að fylgjast með þegar eggbúin eru tæmd. Ekki mjög vont, en óþægilegt.
Verkirnir sem fylgdu á eftir voru hræðilegir. Lagðist í rúm á meðan ég var að jafna mig og klukkutíma seinna var ég komin á ról. Hjúkkan kemur með tölurnar. 29 egg, oförvun staðfest og uppsettningu frestað. Hefði átt að vera á mánudeginum 15 ágúst. Ef konur eru með meira en 20 egg er hætt við uppsetningu vegna oförvunar. Getur verið hættuleg og einkenni aukast ef það verður þungun og maður er lengur að losna við þau. (12 vikur). Á að halda áfram að bæla og fæ lyf til að draga úr einkennum oförvunar. (Krabbameinslyf sem slökkva á framleiðsu estrogens) Fer heim og sef fram á kvöld.
Næstu dagar: Mjög aum í kviðarholinu, ekki miklir verkir en allt hoss er sárt, t.d hraðahyndranir.
15 ágúst: Hjúkkan hringir í mig með frjóvgunartölur. 19 egg frjóvguðust og voru sett í frysti. Ekki vitað hverstu góð þau eru eða hvort þau nái að þroskast því þau voru sett svo snemma. (Það er alltaf gert ef oförvun verður) Á 7 tilraunir með frosnum fósturvísum. 7 strá, 5 með 3 fósturvísum og 2 með 2.
Næstu dagar: Oförvuninn ágerist. Maginn blæs út vegna vökva sem safnast í kviðarholinu, sárt að anda, mæði, svimi, niðurgangur og ógleði. Mikill þrýstingur í kviðarholinu og sárt að hreyfa sig.
Þegar mest var stækkaði maginn um 23 cm.
Dagurinn í dag: Vaknaði í morgunn og fór að pissa. Mikil gusa, meira en venjulegt morgunþvag og niðurgangur. Tók lyfin mín og fór aftur að sofa. Vaknaði um hádegi og fór aftur að pissa, önnur stór gusa. Fann hvað ég var miklu léttari á mér. Þrýstingurinn og verkirnir búnir að minnka mjög mikið. Eðlilegur andradráttur og finnst ég ekki vera að springa. Maginn minnkaði um 7 cm þennan morgunn. Enn pínu aum og útblásin en líður miklu betur. Vonast til að geta farið að vinna eftir helgi
Framhaldið: Mun halda áfram að bæla þar til ég byrja á túr. Fer þá í skoðun og byrja að undirbúa fyrir uppsetningu á frystum fósturvísum.
miðvikudagur, ágúst 17, 2011
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)