miðvikudagur, október 19, 2011

Mömmumont

Förum í fimleika á hverjum Sunnudegi. Krakkarnir hafa verið að fara þvert yfir tvíslá (sjá mynd neðar af honum í fimleikum) og er þetta víst æfing sem reynir pínu á kviðinn. Á síðustu æfingu vildi þjálfarinn að börnin sem væru orðin klár í þessarri æfingu myndu breyta aðeins til. Og ég get með sanni sagt að Húnbogi er klár í þessari æfingu. Þau áttu sem sagt að fara beint áfram í staðinn fyrir að fara þvert. Þjálfarinn sagði að þetta væri mjög erfið æfing fyrir krakkana og það voru alls ekki allir sem gátu það. En Húnbogi gat það :DD Þjálfarinn sagði að hann væri greinilega mjög sterkur.
(Þetta er bjarnargangur á 2 slám)

Monti mont :D

Tilraun 2 á frostpinnum.

Jæja... eftir tæpan 3 vikna undirbúning var loksins uppsetning í morgunn. Sem þýðir bara eitt, hin langa 2 vikna bið er rétt nýbyrjuð. Eins og síðast voru 3 teknir úr frysti og allir lifðu af. En þessir litu betur út. 1 var 4 frumur með 2,5 í einkunn, 1 var 3 frumur með 2,5 í einkunn og 1 var 2 frumur með 2 í einkunn. (einkunn er gefinn þar sem 1 er bestur, Fer eftir bæði fjölda og lögun frumna í fósturvísinum.) Ákveðið var um morgunninn að setja 4 og 2 frumu fósturvísana upp. En þegar kom að uppsetningu sem var klukkan 15:00 kom í ljós að 2 frumu vísirinn var búinn að skipta sér og orðin 3 frumur :D

Sömu lyf og síðast,
Femanest, hormónalyf sem hjálpa til við að styrkja slímhúðina
Utrogest, progesteron, stuðlar að festingu fósturvísis og kemur í veg fyrir ótimabæra blæðingu.
Klexane, sprautulyf, blóðþynnandi. Stuðlar að betra blóðflæði í leginu.
Hjartamagnýl. blóðþynnandi, Stuðlar að betra blóðflæði í leginu.
og svo eitt nýtt
Decortin, sterar, bæla ónæmiskerfið og kemur í veg fyrir að líkaminn hafni fósturvísinum


Hér eru svo krúttin. 3 frumur til vinstri og 4 til hægri :)

Á 13 eftir í frysti í 5 stráum. Talað er um að 70% fósturvísa lifi af frostið, hingað til hafa allir lifað.