Við fórum í skoðun í morgunn og Húnbogi fékk að koma með. Ég var búin að lofa honum að hann gæti fengið að heyra í hjartanu á litla barninu.
Þetta er sama ljósmóðir og við vorum með þegar ég gekk með Húnboga en hún var veik þegar ég átti að koma í fyrstu skoðun og önnur sem leysti hana af. Hún mundi vel eftir okkur og sagði að það væri alltaf svo gaman að fá sömu konurnar aftur. Húnbogi var pínu feiminn.
Hún vill hafa mig í auknu eftirliti, sérstaklega síðustu mánuðina vegna fyrri sögu, en eins og allir vita er Húnbogi fyrirburi og léttburi vegna háþrýstings eða meðgöngueitrunar eins og það kallast líka.
Allt leit vel út, blóðþrýstingur fínn 80/125 (í síðustu skoðun var hann 80/110) og svo fengum við að heyra hjartsláttinn, sem var 140 -150 slög á mínútu.
Talað er um að allt fyrir neðan 150 sé strákalegur hjartsláttur og allt fyrir ofan 150 er stelpulegur . Þannig að spurning hvort strákur sé að þroskast, en Húnbogi var nú líka sagður vera með stelpulegan hjartslátt, svo þetta eru enginn 100% vísindi.
Farið var yfir blóðprufurnar úr líkindamatinu og minnkuðu líkurnar talsvert á genagöllum eftir hana. Þær voru þó ekki miklar fyrir. Járnið var líka fínt.
Húnboga fannst þetta voðalega merkilegt, en benti ljósmóðurinni á það að hann ætti líka svona læknadót og gæti alveg læknað mig.
þriðjudagur, janúar 24, 2012
föstudagur, janúar 20, 2012
Húnbogi 4 ára.
Haldið var upp á afmælið hans Húnboga þann 7 janúar.
Margt var um dýrðir og Húnbogi sáttur við sitt.

Kökuborðið.
Leifur McQueen var aðalkakan, listamaðurinn er að sjálfsögðu Elísabet.

Kveikt á kertunum.......

Það var gott að hafa hjálparmann í pakkaupptektinni.

Piparkökuhúsið brotið og borðað með bestu list.

Jú, það voru líka einhverjir gestir.......
Margt var um dýrðir og Húnbogi sáttur við sitt.
Kökuborðið.
Leifur McQueen var aðalkakan, listamaðurinn er að sjálfsögðu Elísabet.
Kveikt á kertunum.......
Það var gott að hafa hjálparmann í pakkaupptektinni.
Piparkökuhúsið brotið og borðað með bestu list.
Jú, það voru líka einhverjir gestir.......
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)