sunnudagur, febrúar 24, 2013

Þjóðbúningur á smábarn.

 nokkrar montmyndir.

 Hulda Rún í baði. Situr að sjálfsögðu og finnst þetta agalega mikið sport að fá að sulla svona..... á morgunn ætlum við að fara í fyrsta skipti í sund............

Ég prjónaði skotthúfur á krakkana og útfrá því kom sú hugmynd frá mömmu að fara bara alla leið......

4 dögum seinna er þessi þjóðbúningur komin á barnið og hún ekkert smá sátt.

Vonast til að geta notað hann allavega til 2 ára. En þar sem þetta var mjög fljótgert og í raun mjög einfallt er ég ekki í neinu rusli þó hún vaxi strax upp úr honum. Blómin eru Brennisóley.
Á þessarri mynd sést líka tönnslan hennar og hin við hliðna er líka búin að rífa sig í gegn.

 fram og aftur. Hægt að síkka pilsið og svuntuna, líka hægt að víkka. Einnig er vestið lengra með smellum sem hægt er að færa neðar og smella pilsið í.

fimmtudagur, febrúar 14, 2013

Öskudagsbúningar

 Öskudagur í gær. Húnbogi fór sem Bósi Ljósár í leikskólan og Hulda fékk að spóka sig hér heima sem Maríubjalla.
Nú er búið að ganga frá ömmustólnum og rólunni því Hulda er bara orðin svoooo stór..... Alveg að verða 7 mánaða. Hún situr núna alveg sjálf á gólfinu, er farin að standa upp við hluti, og reyndir oftar og oftar að reisa sig upp út á miðju gólfi, endar þá alltaf í bjarnastöðu með rassinn út í loft og veit svo ekkert hvað hún á að gera við sjálfa sig. En í staðin er búið að setja upp leikgrindina sem hún fær nú að dúsa í þegar maður hverfur frá í augnablik (inn á klósett og þessháttar) því hún er snögg í förum og blómapotturinn enn vinnsæll og mjög svo forvitnilegur.....

 Hulda Rún að dúsa í rimlabúrinu.....


 Bósi Ljósár og Maríubjallan

 Bósi kom heim með einhverja geimveiki úr leikskólanum og var allur grænn í kringum munninn.

 Stoltur af að fá að vera Bósi í einn dag...

 ...og stolt lítil padda.

 Staðið upp.....

og leitað að útgönguleiðum líklega.....

mánudagur, febrúar 11, 2013

Ein af uppáhalds viku ársins að byrja

Bolludagur, sprengidagur, öskudagur.
Bolludagur, segir sig nú soldið sjálft, rjómabollur með súkkulaði er eitthvað sem hægt er að hlakka til allt árið, öskudagur, að klæðast í allra kvikindalíki og syngja fyrir nammi segir sig soldið líka sjálft (þó ég sé nú hætt að syngja og kaupi það bara), og svo sprengidagurinn, ekki í eins miklu uppáhaldi og hinir 2 en samt eitthvað við hann. Ótrúlegt en satt, ég með mína matvendni hef alltaf borðað salkjöt og baunasúpu með bestu lyst, að frátöldu þessu soðna grænmetissulli auðvitað!

Í fyrsta sinn fær Húnbogi nú að mæta í grímubúning í leikskólann, hingað til hefur það verið bannað og verið náttfatadagur í staðinn. Fengum samt svo lítinn fyrirvara að ég sá mér bara ekki fært að útbúa búning, fengum tölvupóst á fimmtudag en ég var komin með einhverja flensudrullu og var með 39 stiga hita um helgina. (hann langar ekki að vera víkingur, er það öll sumur) svo við fórum og keyptum tvo, einn handa Huldu. Verð bara að segja að mér finnst flestir þessir búningar sem boðið er upp á óspennandi, óvandaðir og rándýrir miðað við gæði.
Man hvað mér fannst gaman að fara á grímuball í skólanum þegar ég var lítil, í heimatilbúnum búning, og örugglega flestir krakkar í heimatilbúnu (misflott og misvandað að sjálfsögðu) en enginn eins og ótrúlega mikil fjölbreytni. Maður spurði oft "hvað ert þú?" ef það var ekki augljóst.  Núna eru kannski 20 tegundir sem hægt er að kaupa og þar af leiðandi bara 20 fígúrur sem mæta á grímuballið, flest einhverjir karakterar úr bíómyndum, kannski 21 því það er alltaf einhver sem nennir að hafa fyrir flottum búning. Ef það eru ekki búningar þá eru eldir krakkarnir (10 ára og uppúr giska ég) með gúmmígrímu sem hylur allt höfuðið, gallabuxur og úlpa. Sumir eru kannski eitthvað málaðir í framan en samt ekki í neinum búning. Nú vinn ég í búð og sé á hverjum öskudegi krakka koma og syngja, og það er bara einn og einn sem mér finnst spennandi og eitthvað lagt í búninginn.
Ég var einu sinni Hollensk bóndakona, kínverji, prins, gamall karl, trúður, Rauðhetta, sjóræningi og margt fleyra sem ég bara man ekki í augnablikinu, En ég nokkuð viss um að það eru til myndir sem ég ætla að kíkja á, á næstu dögum.
Allavega, keypti búning á Húnboga, en þar sem fyrirvarinn var svo lítill og stutt í öskudag var ekki mikið eftir. Náði seinasta Bósa Ljósár búningnum (Húnboga langað þó að vera Kóngulóarmaðurinn, en hann var uppseldur) en hann var allt of stór. Ég sat því heima með nál og tvinna og stytti hann og bölvaði því hversu óvandaður, óspennandi og dýr þessi búningur var. Og hugsaði svo með mér " afhverju á ég ekki saumavél til að geta skellt þessu í." og útfrá þeim hugsunum, hugsaði ég svo "afhverju kaupi ég mér ekki bara saumavél og sauma búninga sjálf?" Mamma verður því dreginn í saumavélarleiðangur en samkvæmt netinu er úrvalið mikið, fylgihlutir, og tegundir af saumasporum,og verðið allt frá 20 þús og upp í 200 þús. Langar ekki í eitthvað algjört drasl, en þó einhverja vél sem endist. Bara góða heimilisvél sem getur zikk zakkað og saumað beint. Mig langar sem sagt að útbúa búninga sjálf á börnin, og svindla svo aðeins á víkingafötunum þeirra þar sem mikil vinna fer í að handsauma allt, og þau fljót að vaxa upp úr þeim.

Nóg komið að búningatuði.

Myndir.......

 Hulda orðin svoooona stór og ekker smá sátt með nýju/gömlu göngugrindina sýna

 Húnbogi kom heim úr leikskólanum með teygju í hárinu. Ætli þetta sé vísbending frá fóstrunum að senda hann í klippingu?

 Uuuu... já, svona er þetta flest kvöld, þarf að moka úr rúmminu svo pláss sé fyrir Húnboga um nóttina.

Hulda Rún og blómapotturinn. Ótrúlegt aðdráttarafl sem þessi pottur hefur, hún má vaða í allt annað inn í stofu en það er alltaf þessi blómapottur. Hún er nú farin að hika þegar hún kemur að honum og veður ekkert í hann strax. Segi alltaf NEI, má ekki, þegar hún byrja að teygja sig í hann, og ef hún "gegnir ekki" þá er hún færð út í leikhornið sitt.
Hva?... ég er ekki að gera neitt...!

staðin af verki.................

þriðjudagur, febrúar 05, 2013

Myndin loksins komin upp

 Í fæðingarorlofinu ætlaði ég að sauma mynd fyrir Huldu eins og ég gerði fyrir Húnboga.... þó svo ég væri reyndar búin með myndina nokkuð áður en hún svo loksins lét sjá sig. En lét loksins verða af því að láta ramma hana inn, fann meira segja alveg eins ramma, bara annar litur auðvitað.

 Þegar ég sé þessar myndir langar mig rosalega að finna nýja mynd til að byrja á.......

Húnboga herbergi

Huldu herbergi.

Hulda er búin að fatta hvað matur getur verið góður og hámar í sig með bestu lyst hvað sem ég bíð henni og maður má sko hafa sig við að skófla upp í hana svo engin móðgist nú.

Í augnablikinu er matseðillinn á þessa leið.

08.00. Brjóstamjólk
10.30. Hafragrautur með sveskjum og lýsi. Vatn
11.00  Brjóstamjólk
15.00 Bananar og avacado stappað í eplasafa. Vatn
16.00 Brjóstamjólk
19.30 Kjúklingur, sætarkartöflur og gulrætur stappað í ósöltuðu smjöri. Vatn
21.00 Brjóstamjólk.
Milli mála fær hún oft cheerios, og fær einnig að smakka á slátri, bæði blóðmör og lifrapylsu, en bara í hófi út af því að það er alltaf svo mikið af salti í svona tilbúnu út úr búð.

Er að spá í hverju ég eigi að bæta á matseðilinn hennar en ég ætla bráðlega að bæta við 4 máltíðinni.

Blóðmör.

Borðað með tilþrifum.