Ég hef lítið skrifað hér upp á síðkastið enda nóg að gera í skólanum. Þó að þetta séu bara þrjú fög og ég sé að meðaltali bara 2-3 tíma í skólanum á dag þá er nóg af verkefnum sem þarf að skila inn og lesa fyrir tímana.
Í leikskólafræði þarf að skila inn lestrardagbók í hverri viku þar sem við svörum spurningum úr lesefni vikunnar og tengjum það við það sem við þekkjum frá okkar eigin reynslu. Ég á í smá vandræðum með það þar sem ég er ein af fáum sem aldrei hef unnið á leikskóla. Ég reyni að tengja við það sem ég þekki frá leikskólanum hans Húnboga og jafnvel mína eigin leikskólagöngu. Hef meira segja tengt það við daglegt líf hérna heima. Ég er búin að fá eina einkunn fyrir eina lesdagbók, hver lesdagbók gildir 1%. Ég fékk 75 af 100 og ummælin frá kennara voru "Góð tenging við eigin reynslu og áherslur á Norðurbergi". Hefði náttúrulega alveg viljað sjá hærri tölu en miðað við samnemendur mína er ég bara nokkuð há :)
Í inngagni að uppeldis og menntunarfræði er ótrúlega mikið lesefni fyrir hvern tíma og nú er í undirbúningi stórt ritgerðarverkefni sem þarf að skila í október (25%)
Í talað mál og ritað eru endalaus ritverkefni (svo ekki sé minnst á munnlegu verkefnin!). Dagbókarfærslur, útdrættir, rannsóknarspurningar, bakþankar, bréf, heimildarskráning svo lítið eitt sé nefnt. Nú er ég að fara yfir 5 útdrætti úr rannsóknarritgerðum og meta í jafningjamati (förum yfir verkefni samnemenda og gefum einkunn) Í þessari viku hefst svo undirbúningur fyrir 2 stór verkefni (25% og 20%).
Ég er semsagt búin að skila inn fullt af verkefnum en aðeins fengið eina einkunn til baka.
Ég er að vinna í Fjarðarkaupum á föstudögum eftir hádegi þegar Helgi er ekki á kvöldvöktum og ég tek líka nokkra laugardaga. Ég fæ svo að koma inn um jólin þegar ég vil, (semsagt þegar prófin eru búin) og vinna þar til næsta önn byrjar í skólanum.
Húnbogi tekur mynd. Niðursokkin í lærdóminn.
Nóg um mig!
Hulda Rún er algjör engill (að sjálfsögðu) að sögn dagmömmunar og sem hugur hennar. Nú hafa bæst við 2 börn til hennar svo þau eru orðin 4.
Hulda er komin með 8 tennur svo næst eru það jaxlarnir.
Húnbogi fékk tvær verkefnabækur í gjöf frá mömmu og hann situr við þær ótrúlega duglegur og les, reiknar, skrifar, klippir og límir. Besta er að hann sest niður við þær að eigin frumkvæði og vinnur í þeim klukkustundum saman.
Huldu Rúnu þykir mikið sport að skella hlutum yfir höfuði.
Framtíðar geimfari hér á ferð
Morgunstund yfir morgunbarnaefninu
Lautarferð með Þrasthvítri.
Húnbogi í...
Raufarhólshelli.
mánudagur, september 23, 2013
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)