miðvikudagur, október 16, 2013
Gengur vel í skólanum.
Þessari dömu finnst nú ekki leiðinlegt að lita og ef vel er að gáð sjást tárin á kinnunum þegar vitlausum foreldrum hennar datt í hug að nú væri komið nóg af litastund og kominn matartími og tóku af henni litina. Eins og sjá má vann hún þessa rimmu og situr sátt og litar meira
Fjarðarkaup héldu upp á 40 ára afmælið nýverið og var boðið upp á kökur og kaffi, blöðrur og ís fyrir kúnnana ásamt mörgum uppákomum. Ég tók Húnboga með mér að versla þar sem hann heilsaði Gogga Mörgæs og það var eins og hann hefði hitt hetjuna sína. Svipurinn var óborganlegur. Hann fékk að sjálfsögðu blöðru, ís og köku en því miður sprakk blaðran þegar heim var komið. Næsta dag var ég að vinna og Húnbogi kemur í heimsókn rétt fyrir lokun. Hann gengur með mér út starfsmannainngagninn og í fundarherberginu eru fullt af blöðrum en enginn inni. Ég segi við hann að hann megi stela sér blöðru ef hann vilji. Hann stendur hljóður í dyrunum í smástund en segir svo að hann vilji ekki blöðru. Viltu ekki blöðru segi ég hissa og spyr afhverju. Þá segir Húnbogi " Það er ljótt að stela". Soldið stolt núna af stráknum.
Ég er afskaplega ánægð, nú er munnlega lokaprófinu lokið og þungu fargi af mér létt. Og það sem meira er, ég held að ég hafi bara staðið mig ágætlega.... en einkunn kemur kannski eftir 2 vikur. Spennó...
Annars er ég komin með fleyri einkunnir. Fékk 9,5 fyrir 5% verkefni í leikskólafræði sem fjallaði um upplýsingatækni í leikskólum. Ég notaði forrit sem heitir MindManager og er notað til að búa til hugarkort. Hef aldrei notað þetta forrit áður svo ég er ánægð með þetta. Ummæli kennarans voru "Vandað og vel útfært hugarkort með vel völdu efni. Áhugaverð áhersla er lögð á ýmsar lausnir tengdar hljóði og bent er á margar heimildir og bjargir. Texti vandaður og frágangur góður. Sýnir góð grunntök á MindManager. Mjög vel leyst!"
Einnig er ég komin með tvær 10 í talað mál og ritað, eina 9,55 og 9,25. Af 130 nemendum er ég með hæstu einkunn. Því miður eru þetta samt bara verkefni sem gilda samtals tæp 10%. Vona bara að lokaeinkunnir verði á svipuðu reki ;)
fimmtudagur, október 10, 2013
Frídagur
Tók mér frí í dag. Fór reyndar í skólan frá 9 - 10 en eftir það hafði ég ákveðið að kíkja ekkert á lærdóminn. Kíkti í ræktina eftir skóla og hljóp í 50 mín. Fór upp í vinnu og suðaði um að fá að mæta 8 á morgunn í staðinn fyrir 13 og fór svo heim og horfði á 3 þætti af Dexter sem ég hafði misst af. Þegar börnin komu heim léku við okkur og dönsuðum. Ég saumaði bleika slaufu og bleikt belti á Húnboga fyrir bleika daginn á morgunn í leikskólanum og svo er að ákveða eitthvað gott í kvöldmatinn. Þegar þau fara að sofa er spilakvöld hjá mér og félögum mínum í tölvunni sem er fastur liður á fimmtudagskvöldum.
Á morgunn er ég svo að vinna frá 8-19 og á laugardag frá 9-16. Eftir það fer allt laugardagskvöld og sunnudagur í að undirbúa mig fyrir munnlegt lokapróf sem verður í næstu viku auk mánudags og þriðjudags þegar ég er búin í skólanum..... Vikan sem ég er búin að kvíða mest fyrir alla önnina. 2 munnleg verkefni sem endar svo með lokaprófi sem gildir 20%. Stressið strax farið að segja til sín.
Nóg að gera.... en önnin er allavega hálfnuð núna og próftaflan komin. Soldið þétt hjá mér prófin en þau eru 5, 9 og 11 des. Fer svo í fulla vinnu þar til skólinn byrjar aftur eftir áramót.
Hulda Rún er komin með 2 efrijaxla og þetta er í fyrsta skipti sem hún slefar. Hún er farin að sýna bæði hver ræður og hver á allt... en það er náttúrulega hún sjálf. Þegar ég tek Húnboga í fangið kemur hún alveg trítilóð og treður sér með. Hún spígsporar hér um gólf eins og drottning.
Tók 2 vídjó af þeim. Annað bara af Huldu að dansa en hitt með þeim sistkynum að dansa við uppáhaldslag Húnboga.
Hulda Rún dansar
og
Dansiball
Best að fara og njóta frídagsins ;)

fimmtudagur, október 03, 2013
Ný einkunn komin í hús
Var að fá einkunn úr leikskólafræðinni. 9,0.
En gildir bara 1%.......
Ég er að verða brjáluð á ritgerðarfélaga mínum í uppeldis og menntunarfræði. Skil á ritgerðargrind eru á morgunn og ég hef ekkert fengið frá henni. Ég er búin að senda henni marga pósta, bæði e-mail og facebook, um hugmyndir og heimildir, það eina sem ég fæ frá henni, það er að segja þegar hún hefur fyrir því að svara er "rosaleg fínt, lýst vel á þetta" engar hugmyndir eða neitt frá henni. Við erum búin að hafa 3 vikur.
Þetta er bara grindin, hvernig ætli þetta verði þegar við byrjum á sjálfri ritgerðinni. Og þetta verkefni er 25%.
Mér finnst virkilega slæmt að vinna svona á síðustu stundu, þó ég sé komin með næstum fullmótaða hugmynd og búin að leita af fullt af heimildum, (sem er erfiðara en ég hélt) þá er ég algerlega á móti því að fá ekkert frá henni.
Var ég búin að segja það.... Ég þoli ekki hópverkefni!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)