sunnudagur, febrúar 16, 2014

Kýr á svelli

Ég og Húnbogi skelltum okkur á skauta í Egilshöll í dag. Hann hafði séð listdans á skautum í sjónvarpinu og sagði að þetta langaði hann að prufa.  Mér til mikillar furðu og ánægju gafst hann ekki upp og var það að lokum ég sem nennti ekki meira og dró hann heim eftir rúma tvo tíma.. Hann var bara nokkuð klár miðað við að hafa aldrei stigið á skauta áður og þetta verður pottþétt eitthvað sem við gerum aftur.

Fyrst var hann með hjálpargrind en svo losaði hann sig við hana og vildi spreyta sig sjálfur á ísnum.
Húnbogi á skautum. Smellið til að sjá snillinginn.

miðvikudagur, febrúar 05, 2014

fer ekki alveg að fara koma sumarfrí!?!?!

Ég og Húnbogi erum búin að bóka flug til Brussel í sumar :D
Við verðum það hjá Írenu og fylgihlutum frá 29 júní til 9 júlí og ég býst við að það verði heljar mikið stuð. Heiðrún ætlar að fljóta með okkur út en verður samt eitthvað lengur sem au pair hjá Elínu í sumar. Það er náttúrulega óþarfi að segja frá því að Húnbogi er yfir sig kátur yfir þessu enda búin að suða nokkur ár um að fá að gista heima hjá Írenu (og prófa dótið hennar).

Skólin gengur vel en ég finn að ég er aðeins kærulausari núna en á síðustu önn. Kannski er það vegna þess að það eru færri verkefni eða vegna þess að mér fannst vinnan sem fór í þetta seinustu önn ekki þess virði. Ég veit ekki hvað það er, en ég held þó áfram (að mestu leiti) að lesa fyrir tímana (sleppi þessum norsku og dönsku greinum) og vinna verkefni mín með góðum fyrirvara. Það eru náttúrulega fullt af hópaverkefnum (4 saman í hóp sem haldast út önnina. 2 hópar í 2 fögum) og hef ég nú þegar skilað inn verkefni fyrir minn hóp þar sem ég vann alla vinnuna að mestu leiti ein. Það var reyndar hópur þar sem ég valdi ekki félaga mína... einhvernvegin urðum við bara 4 eftir útundan og vorum skikkuð saman í hóp. En í öðrum hópum valdi ég mér mína félaga og er nokkuð sátt þó ég þurfi stundum að sparka í rassinn á þeim. Hef tvisvar neitað fólki... ég veit hverjum ég vil alls ekki vinna með en það eru nokkra sem flokkast undir þann vafasama hóp.
Annars fynnst mér bara skemmtilegt í skólanum og hlakka til að mæta í tíma, ég er búin að kynnast stelpunum nokkuð vel og sit með þeim í frímínútum og þó ég vilji ekki vinna með þeim öllum  í verkefnum eru þær ágætis félagsskapur. Það eru nokkrir dottnir úr leikskólafræðini, bæði fólk sem féll á seinustu önn og aðrir sem bara hættu svo við erum bara 10 sem mætum í tíma, en yfirleitt mæta ekki allir. Það eru fleyri í fjarnáminu sem ég þekki ekki eða um 13. Ég vona að það fækki ekki mikið meira í hópnum því þá verður staðnámi hætt í þeim fögum sem of fáir eru og ég næ ekki að einbeita mér eins vel þegar ég hlusta á fyrirlestur í gegnum tölvuna. Það er líka skemmtilegra að vera í tíma.

Af Húnboga og Huldu er allt gott að frétta og lítið sem ég hef að segja um þau. Húnbogi leikur sér ekkert inn í sínu herbergi þessa dagana (frá jólum og afmælinu sínu) því hann fær að vera með lego kubbana á borðstofuborðinu og þar situr hann alla daga og dundar sér. Hulda fær stundu líka að fikkta aðeins í kubbunum en henni finnst skemmtilegast að taka hárið af köllunum og blómin af blómunum.
Húnbogi og Freyja eru hætt saman en Freyja vill víst ekki giftast Húnboga lengur. En Húnbogi er komin með nýja kærustu sem vill giftast honum sem heitir Mithulee og er frá Sri Lanka. En hana langar víst ekki að eignast börn segir Húnbogi svo ég fæ engin barnabörn þar. Reyndar fékk Húnbogi einhverstaðar frá nákvæma lýsingu á því hvernig börnin verða til (leikskólanum held ég) og honum finnst það hálf ógeðslegt og langar því sjálfum ekkert í börn. En hann kom til mín um daginn þegar hann átti að vera farin að sofa og var mjög hugsi, grafalvarlegur og spurði "Býr maður til börn með því að setja typpi inn í píku?" Já, þannig er það víst......

Ég er ferlega fúl út í skattinn. Mánaðrmótin des/jan fékk ég helling útborgað því ég á svo mikin uppsafnaða persónuafslátt og skatturin tók ekki krónu. Ég vann eins og vitleysingur um jól og áramót, alla yfirvinnu sem ég gat og bjóst við miklu núna jan/feb því á launaseðlinum seinast stóð að ég ætti eftir 186 þús í uppsöfnuðum persónuafslætti. Launatímabilið er 20 svo jólin lentu á þessum launaseðli en NEI, SKATTURINN TÓK FULLAN SKATT því persónuafslátturinn FYRNIST á áramótum!!!! Ég var ekki kát. Ég skil ekki afhverju það er ekki skylduáfangi í skóla sem kennir manni á skattakerfið. En ég ætla að hefna mín og næsta nóvember læt ég Helga hafa mitt skattkort til að fullnýta þennan persónuafslátt. Og í sumar verð ég á súperlaunum með fullt af uppsöfnuðum afslætti.... þeir skulu sko fá að kenna á því!....

Eina mynd í lokin af þeim frændsistkynum rétt áður en hún flutti út...