Húnbogi er 8 mánaða í dag, allar kökur vel þegnar.
í afmælisgjöf fekk hann sprautu gegn meningókokkum C.
Við fórum semsagt í skoðun í morgunn. Hann er orðin 71,8 cm og 7,675 kg. Heldur sinni kúrfu alveg. Hjúkkunni finnst hann flottastur og ég er VISS um að hún segi þetta sko ekki við öll hin börninn........
Nú er ekkert letilíf lengur hjá mér. Ekki lengur hægt að sitja í sófa og sauma í friði þegar Húnbogi vakir. Þarf að hoppa og skoppa á eftir honum og passa að hann fari sér ekki að voða. Nú er enginn afsökun lengur, verð að fara og kaupa öryggisdóterí. Límbandið heldur ekki lengur. Skrítið hvað litríkasta og flottasta svæðið (leiksvæðið hans) í íbúðinni er ekkert spennandi lengur. Hann er orðinn ansi snöggur í förum, dregur sig áfram á höndunum og er aðeins byrjaður að reyna að nota fæturnar með. Nú á sko að rannsaka hvern krók og kima. Sá það í gær hvað gólfið er skítugt. Hann var nefnilega í hvítum bol. Ermarnar og maginn frekar subbó eftir 1 dag.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
híhíhí skemmtilegar myndir.
hey ég mæli með að setja bara moppu undir mallann.. það svínvirkar og þú slærð tvær flugur í einu höggi... Húnbogi verður ekki eins skítugur OG gólfið verður hreint.
bingó
Skrifa ummæli