Við fórum í dag og keyptum göngugrind handa Húnboga. Eina ástæðan fyrir því er að dvergurinn er svo skítugur. Þeir sem ekki vita þá er dvergur heitið á aðstöðuni þar sem víkingahandverk er unnið. Ég var ekki sátt við að þurfa að sitja heima með Húnboga meðan Helgi færi því ekki vil ég að Húnbogi skúri gólfið í dvergi með tungunni og fínu fötunum sínum. Göngugrind er fín lausn, ég og Helgi getum bæði sint handverki. Svo er líka svo þægilegt að taka hana með á heimili sem við förum í heimsókn til sem ekki eru barnheld.
Húnbogi var mjög sáttur við þetta fyrirkomulag og hlakkar örugglega til næsta laugardags. Planið er nefnilega að vera ekkert að nota þetta hérna heima og að óþörfu þar sem þetta verður að nota í hófi. Margar sögur um að börn verði hjólbeinótt eða veik í baki ef þetta er notað of mikið.
Eftir handverk fórum við í heimsókn til Þuru ömmu, Sigrún frænka var þar líka. Fengum mat að borða og Húnbogi fekk sinn kvóta af athygli fyrir næstu viku.
1 ummæli:
jahmm... var einmitt að spá í að hafa litla gaddavírsgirðingu svo ég geti komið með Hrafnkel. En þær kosta bara svo helv. mikið !
Hrafnkell tolldi ekkert í svona göngugrind lengi, fór strax að reyna að hvolfa henni og hlaupa á hluti... kannski þinn ENGILL verði rólegri !
kv.ey bitter one
Skrifa ummæli