Nú er Húnbogi kominn á fulla ferð. Þó að hann sé ekki búinn að læra að skríða þá eru aðrar ekki síður góðar aðferðir notaðar til að koma sér áfram. Hann veltir sér, mjakar og spyrnir. Og ekki vantar áhugan á umhverfinu þannig að hvatinn er til staðar til að nenna þessu veseni. Á morgunn ætla ég að fara og kaupa barnalæsingar og fleyra dótterí sem kemur í veg fyrir að littlir puttar klemmist í skúffum auk annarra meiðsla. Ekki vill ég að forvitninn drepi köttinn.
Veikindi búin að vera ríkjandi hér á þessu heimili síðustu vikur. Fyrst Húnbogi, svo ég og núHelgi. Háin 3, Hiti, hor og hausverkur. Allir sem vilja fá frí í vinnu og liggja undir sæng, horfa á dvd og snýta sér eru velkomnir í heimsókn. Allir sem vilja það ekki eru samt líka velkomnir.
1 ummæli:
Við Vogabúar erum svo kærulausir að okkar 18 mánaða besti vinur Húnboga opnar skúffur og skápa, prílar í sófanum, skellir hurðum, hrinur niður tröppur og fullt meira sem er sárt. Hann er líka svo mikill skæruliði að það er ekkert HÆGT að læsa bara, hann fattar hvernig á að opna samt!
En Hrafnkel hlakkar mikið til þegar Húnbogi fer að geta tekið þátt í þessum skæruhernaði og bað um að fá að passa um leið og litlir puttar geta potað oní ruslatunnuna, þar er nefninlega fullt af dóti !
kv.sigga
p.s ég kem aldrei í heimsókn ef boðið er uppá hor, hita og hausverk - nema þú eigir snakk.
Skrifa ummæli