mánudagur, október 13, 2008

Húnbogi var sendur í pössunn til ömmu og afa á Álftanesi frá laugardegi til sunnudags. Á meðan voru við foreldrarnir að sinna öðrum skildum. Haustþing Rimmugýgjar. Eftir þing er venja að fólk staldri við og slökkvi þorstann.....enda mikið talað, og jafnvel rifist á þessum þingum. Venjan er líka sú að fólk fái sér ekki vatn til að slökkva þennan, sem virðist, óstöðvandi þorsta. Ekki nema að það sé eldvatn.....

Í kvöld er ég að fara á trommunámskeið... í svokallaðan trommuhring, þar sem sagt er að betra sé að hafa ekki allt of mikinn takt. Það hentar mér ágætlega og held að verði rosa stuð.

p.s. Mamma....getur þú passað á Sunnudaginn af því að ég er að fara að hjálpa Siggu að flytja í þitt næsta nágrenni

1 ummæli:

Unknown sagði...

psst,ég er komin með pössun fyrir minn :-D

það verður svo gaman á sunnudag... lyfta þungu dóti, böggla því niður 3 hæðir og svo niður í kjallara í mosó... nei bíddu... við erum konur... Æh oh jæja - við lyftum þá bara létta dótinu og þrífum húsið.

jeij