Húnbogi Bjartur 10 mánaða.
Ég var bara að plata sko. Það er fullt búið að gerast ég bara mundi það ekki þegar ég var að skrifa síðast. Og ég hef góða afsökun. Sagt er að minnið verði verra þegar maður er óléttur. Það var samt ekkert sagt um það hvenar það kæmi til baka!!
En semsagt, á sunnudaginn fórum ég og tengdó á rúntin í Keflavík að kaupa jólakerti, rosalega flott kerti þar...væri til í að fara á hverju ári. Fórum svo á Selfoss og skoðuðum og keyptum pólskar jólakúlur. Væri líka til í að fara á hverju ári þangað. Rosalega fallegar og hægt að safna.
Já það er stuð, já það er stuð, já það er stuð að vera 10 mánaða.
Húnbogi getur núna sest upp sjálfur án þess að hafa hjálp frá púðum, leikföngum eða húsgögnum, hann kann líka að príla, og svo detta en sagt er að æfinginn skapi meistarann þannig að hann á eftir að verða dettimeistari áður en langt um líður. Fór með hann í skoðun þann 18 og er hann orðinn 75,2 cm og 8,53 kg. Höfuðmálið er 47,2 cm.
Heldur sér alveg á kúrfunni í þyngd en er aðeins að klifra í hæðinni.....Alveg eins og ég :))))
Og já, hann er hættur á brjósti. Var komið út í einhvern leikaraskap hjá honum, vildi miklu frekar leika en að drekka þannig að ég hætti bara, og hann virðist ekkert sakna þess.
Kórdrengur??
2 ummæli:
Írena fer í 18 mán skoðun eftir viku. Verður spennandi að sjá hvort þeirra sé lengri. Veðja þó á
Írenu Mjöll, enda er hún allaveg 2kg þyngri ;)
Skoðaðu þetta!!!! http://www.hbcornerstore.com/needlecrafts.html
Ef þú pantar talaðu þá fyrst við mig. Því mig langar að panta líka
Skrifa ummæli