sunnudagur, janúar 25, 2009

Hlín á þingi

Ég fór á rimmugýgjarþing núna á laugardaginn....og eins og svo oft áður var mikið talað og mikið þurfti til að slökkva þorstann.
Elísabet og Katrín voru með Húnboga hérna heima og gistu.
Vaknaði í morgunn skell þunn og æðisleg. Þessir víkingar eru ekki nískir á sopann sinn og nei er ekkert svar. Kom heim um 5 leytið. Helgi var nú kominn mun fyrr eða um 2.
Húnbogi er kominn með nýjan svip....set mynd af honum hérna næst þegar ég næ mynd af því....það er gerfigrenjusvipur.... og er ekki alveg að virka því ég hlæ bara að honum þegar hann setur hann upp....
Ný vinnuvika frammundan...jibbý. En er búin að fá það í gegn að hætta klukkan 4 einusinni í viku til að fá að eyða tíma með Húnsa því það er ekkert gaman að sjá hann ekki allan daginn og svo loks þegar maður kemur heim er það bara kvöldmatur og upp í rúm með hann.
Helgi er aftur á móti að fara að fylla út atvinnuleysibóta umsóknina..................

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

peningaleysi borgar sig ekki.

Segðu Helga að atvinnuleysi sé bara skemmtilegt, í tísku og hentugt.

Þannig að... atvinnuleysi og að eiga pening... það borgar sig.

ee, svo... ég er að verða þrítug.

bless

p.s þetta var samansafn af hlutum sem ég skrifaði bara því ég hafði ekkert að segja.

kv.sigga

Nafnlaus sagði...

já tek undir með siggu.. :D

kv.guðný

Nafnlaus sagði...

sammála Siggu!

Gudda