þriðjudagur, febrúar 17, 2009

Night at the museum 2

Fórum á safnanótt síðasta föstudag frá 7 til 12. Vorum á sögusafninu í Perlunni og reyndum að fá gesti og gangandi til að æpa og öskra með því að slá þeim skelk í bringu. Gerðum það með því að stilla okkur upp með hinum brúðunum og svo bara bíða. Eins og snákar. Þegar fórnarlambið var svo komið nógu nálægt og var jafnvel farið að snerta hreyfði maður sig snögglega....HAHAHA....litlu gestirnir vissu nú ekkert hvaðan á þá stóð veðrið, en það stóð úr vestri.



Á Sunnudag kíktum við svo á bogaæfingu hjá íþróttafélagi fatlaðra. Þar var kapi eytt meðal ólímpískra boga, langboga og jafnvel húnboga, ásamt fleyri gerðum sem líktust minna bogum og minntu kannski pínulítið á ....tja....vélmenni. Meira svindlið það.




Er heima núna... bað fallega um að fá að fara heim úr vinnuni því að ég er doldið slöpp og flensugangur búin að gera okkur lífið leytt í grænmetisdeildinni. Held samt að þetta sé bara svona eins dag flensa. Hausverkurinn verður farinn á morgunn og þá stoppar smá hor, hósti og kverkaskítur mann ekki í að mæta til leiks að nýju.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alltaf gaman að skelfa bæjarbúa. Svona eru djobbin sem maður fær í kreppunni, leika brúður !!!

Mig langaði alveg á bogaæfinguna, en langaði aftur á móti ekki með gúmmíbogann minn sko. Aðhlátursefni var ekki fyrst á listanum fyrir mig þennan sunnudag sko sko skoooo.

pís

k.sigga