þriðjudagur, mars 24, 2009

Jubb jubb

Ég er klárlega að standa mig nokkuð vel.
Hef mætt 3. í ræktina og 1 sinni á rimmugýgaræfingu síðan á föstudaginn.
Það var samt nammidagur á sunnudag (Gudda heimtaði það) og drakk ég 2 glös af kók, smá ostapopp og pínu bland í poka. Ekkert miðað við hvernig ég hef oft fengið mér. Ekkert búinn að vera að fara á skyndibitastaði en nýjasta æðið er boozt. Fór 2 og fekk mér í kringlunni til að smakka og til að sjá hvernig það væri gert og nú geri ég þetta bara heima sjálf.
Boozt er skyr sem sett eru í allskonar ávextir að eigin vali og klaki. Svo er þetta sett í "blender" og maukað alveg hægri vinstir og svo drukkið með röri eins og sheik.
Mitt uppáhald er:
Vanilluskyr, banani, pera, frosinn jarðaber( þessu fersku eru svo dýr) og svo nottulega klaki. Nammi namm....var að enda við að fá mér.
Ætla næst að prófa skyr án bragðefna (hollara sko)..... og bæta í fullt af ávöxtum....
Svo finnst Húnsa þetta rosa gott líka.

2 ummæli:

ellapaunk sagði...

Flott hjá þér ;)

Nafnlaus sagði...

you crazy !!

ég eldaði grænmetissúpu í gær, fullt af kartöflum, sellerí, papríka, linsubaunir og laukur... hvað ást þú í kvöldmat?? skjur punktum is ???

bara byrja að elda hollt og ekkert namm þá minnkar maginn líka. Grænmetisréttir eru hollir og bragðgóðir og pizza er óholl - ÓHOLL SEGI ÉG.