Jæja... páskar búnir og sumar á næsta leyti. Ásamt víkingaverðalögunum...tralala
Búin að sauma hettu og vesti á Húnboga...bara eftir að gera kyrtilinn.
Af Húnsa er það að frétta að fyrsti jaxlin er að ryðja braut sína í gegnum tannholdið, honum til mikillar ergju og sársauka.
Og það er búið að panta okkur (mig og Húnboga....og líka Siggu og Hrafnkel ásamt fleyrum útvöldum) á tískusýningu á fimmtudaginn....klukkan 3 í þjóðmenningahúsinu...verið er að kynna sögutengda ferðaþjónustu.. Verða kynnt víkingaklæðin okkar.
Verð að reyna að rumpa saman kirtli á Húnboga á einum sólarhring. Án þess þó að missa úr vinnu eða svefn. úff....semsagt 5 tímar.
Kemur í ljós hvernig það gengur. Kemur líka í ljós hvort ég fái að fara fyrr úr vinnu. Á að vera til 4 á Fimmtudögum...........
Helgi er kominn með tímabundna vinnu næstu 6 vikur....einhver lagervinna. Veit ekkert hver launin eru en hey....hverjum er ekki sama....vinna er vinna og er bara nokkuð sjaldgæf ....!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
rare is fare !
spáðí hvað við erum mikil módel ! Fyrst ljósmyndatörn og svo tískusýning !!! Bráðum verðum við frægar Hlín ... bara bíða róleg, þá kemur cash'ið !
Til lukku með vinnandi bónda...
Skrifa ummæli