Það eru engin sælukvöld framundan hjá Húnboga miðað við viðbrögð hans í gærkveldi.
Hann er kominn með púst sem hann á að taka á hverju kvöldi næstu 2 vikur til að reyna að hjálpa honum að losna við allt slímið sem hefur safnast í lungun. Búin að vera með ansi ljótan hósta frá því í síðustu veikindum. Pústinu fylgdi eitthvert svakalegt apparat (einhverskonar öndunargríma) sem þarf að hylja munn og nef á meðan hann andar in lyfinu. Og ég hef aldrei heyrt hann öskra og gráta eins mikið.
Þyrfti að fá smá ráðleggingar frá mömmu hinum vana barnahjúkrunarfræðingi. (þori að veðja að hún hafi þurft að gefa 1 til 2,3,4...... púst)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
já hann var ekkert alltof sáttur við þetta krílið.
En dúllið verður að losna við slímið.
úff... hrafnkell sendir baráttukveðju
Skrifa ummæli