sunnudagur, júlí 05, 2009

Í garðinum hjá afa og ömmu í Mosó

Fórum í gær í Mosó og eyddum þar öllum deginum. Þar var boðið upp á vöflur og svo grillaðan kjúkling í kvöldmat en mestum deginum var eitt úti enda 21 stigs hiti í garðinum. Elín og Írena voru þar líka, var nú glatt á hjalla á þeim bæ þennan fallega laugardag upp í Mosó.
Eins og sjá má var garðurinn í sínum fallegasta skrúða.


Það var farið í sandkassaleik.....



og það var farið í eltingaleik.......



Það var líka aðeins kíkt í kofann.....



Þar bauð Írena öllum í kaffi og graut.......



og það var farið í bílaleik......l



og svo var skipts á mjög svo merkilegum leyndarmálum......




Afi var að laga pallinn og það var mjög forvitnilegt....



Upprennandi handlangari hér á ferð!

Jább....svo sannarlega góður dagur.

E.S. Er búin að vera bíða eftir jöxlum í harðjaxlinum (AAAAHAHAHAHA).....
en sá svo í morgunn báðar augntennurnar í efrigóm komnar vel á veg niður. Var ekkert búin að vera kíkja eftir þeim....hélt að jaxlar kæmu á undan.....

2 ummæli:

Unknown sagði...

við eyddum deginum aðallega í bíl ! Ekkert smá flottur garðurinn þarna maaar ... eins og í útlöndum!

Þeir félagar verða að fara að hittast og leika saman, mér finnst það.

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir ....