þriðjudagur, ágúst 25, 2009

Loksins!

Jæja...stefnan tekin á leiksólan á morgunn...og vinnu....
orðið frekar leiðinlegt að hanga heima og geta ekki farið út.
Húnbogi hitalaus í gær og í dag þó að einhver leiðindar púki sé enn í honum. Sefur illa og þar af leiðandi sef ég illa. Vona bara að það lagist þegar hann kemst í rútínuna sína aftur. Enda mikið búinn að sofa síðustu viku.
Vona að veikindapakkinn sé búinn í bil.
7-9-13

sunnudagur, ágúst 23, 2009

meiri hiti

Húnbogi enn þá með hátt í 40 stiga hita....
Ég orðin slæm af kvefi líka....
enginn leikskóli eða vinna á morgunn.

laugardagur, ágúst 22, 2009

helst í fréttum.........

Helgi lét "laga" hárið eftir mikið tuð í mér. Afraksturinn bara nokkuð góður


þó er bara að vinna í andlitshárunum....muhahahaha



Húnbogi varð veikur á fimmtudaginn.....með 39,8 stiga hita og var næsu 2 sólarhringum eitt í kúr. Gat því miður ekki komið í skemmtiskokkið í dag þó að hitinn sé að mestu farinn.
Ég skellti mér þó og hljóp þessa 3 kílómetra á 22 mínútum og hefð varla geta komist hraðar þó ég vildi vegna fjölda af þáttakendum....enda met þáttaka eða um 1700 manns í skokkinu. Allir fyrir öllum....en samt stuð.


Húnbogi fekk að máta verðlaunapéninginn hennar Guddu en með rásnúmerið sitt.


Næsta ár verður tekið með trompi.

föstudagur, ágúst 21, 2009

Enginn hlaup.....

Húnbogi er bara orðinn veikur....var með 40 stiga hita í gær og er með 39,5 núna. Þannig að það verður því miður lítið úr hlaupinu á morgunn sem ég var búin að skrá hann í. Bara næsta ár!

Ég ætla nú samt að fara.......... þó það verði ekki eins gaman án Húnsa.

þriðjudagur, ágúst 11, 2009

Fyrsta íþróttamót Húnboga

Ég er búin að skrá mig og Húnboga í skemmtiskokkið, Maraþonhlaupið 22 ágúst.......já....alveg heilir 3 kílómetrar. Man á sínum tíma þegar þetta voru 7 kílómetrar og við sistkynin tókum þátt ár eftir ár. Því miður er ekki tímataka á 3 kílómetrahlaupinu....en...við fáum verðlaunapéning. Helgi fær það skemmtilega hlutverk að vera myndatökumaður.
Verð náttúrulega með Húnboga í kerru en ætla leyfa honum að spreyta sig á síðustu 100 metrunum.
Hlakka til............
Mæli með því að fleyri skrái sig!

mánudagur, ágúst 03, 2009

Bogfimimót Hringhorna og verslunarmannahelginn

Fórum um helgina í skógræktina hjá Akranesi og tókum þátt í hinu árlega bogfimimóti Hringhorna.
Húnbogi var sendur í pössun til ömmu og afa í Mosó og Gudda tekinn með í staðinn.
Skipt var í 5 riðla og voru 4 í hverjum. Skotmörkum var búið að koma fyrir á um það bil 25 stöðum vítt og breytt um skóginn. Þetta voru þrívíddarskotmörk úr frauðplasti, stór og smá, (hirti, villisvín, endur, refi og fleyra) í mismunandi fjarlægðum og oft þurfti maður að skjóta gegnum greinaþykkni. Maður fekk 3 tilraunir við hvert skotmark og gefin voru stig.
2 hringir voru farnir.


Ég og Helgi klár í slaginn


Skotið á hjört í fyrri umferð


Þetta fannst mér skemmtilegt skotmark. Hitta í gegnum hringina og í öndina.


Seinni umferð hafinn í nýjum riðli


já passið ykkur bara!

Þess má nú geta ég vann gullið og fekk myndarlega medalíu sem hangir núna hjá boganum mínum :)

Ég og Gudda stungum svo bara karlinn af og fórum á Flúðir á laugardagskvöldinu. Hittum þar gamla gengið.
Sólinn var upp á sitt besta og svo heitt var að malbikið bráðnaði. Brann líka nokkuð vel, sérstaklega aftan á hálsinum sem áður fyrr var vel varinn að hári.


Húnbogi og Helgi komu svo á Sunnudagskvöld og voru fagnaðarfundir hjá mér og Húnsapúns.
Keyrðum svo heim eftir að hafa grillað á Flúðum. Húnbogi fékk að gista hjá ömmu á Álftanesi mér til mikillar ánægju því var frekar þreytt eftir helgina.
Frídegi verslunarmanna eytt í að gera ekki neitt.......og þá meina ég ekki neitt! Þannig á það aðvera............