mánudagur, ágúst 03, 2009

Bogfimimót Hringhorna og verslunarmannahelginn

Fórum um helgina í skógræktina hjá Akranesi og tókum þátt í hinu árlega bogfimimóti Hringhorna.
Húnbogi var sendur í pössun til ömmu og afa í Mosó og Gudda tekinn með í staðinn.
Skipt var í 5 riðla og voru 4 í hverjum. Skotmörkum var búið að koma fyrir á um það bil 25 stöðum vítt og breytt um skóginn. Þetta voru þrívíddarskotmörk úr frauðplasti, stór og smá, (hirti, villisvín, endur, refi og fleyra) í mismunandi fjarlægðum og oft þurfti maður að skjóta gegnum greinaþykkni. Maður fekk 3 tilraunir við hvert skotmark og gefin voru stig.
2 hringir voru farnir.


Ég og Helgi klár í slaginn


Skotið á hjört í fyrri umferð


Þetta fannst mér skemmtilegt skotmark. Hitta í gegnum hringina og í öndina.


Seinni umferð hafinn í nýjum riðli


já passið ykkur bara!

Þess má nú geta ég vann gullið og fekk myndarlega medalíu sem hangir núna hjá boganum mínum :)

Ég og Gudda stungum svo bara karlinn af og fórum á Flúðir á laugardagskvöldinu. Hittum þar gamla gengið.
Sólinn var upp á sitt besta og svo heitt var að malbikið bráðnaði. Brann líka nokkuð vel, sérstaklega aftan á hálsinum sem áður fyrr var vel varinn að hári.


Húnbogi og Helgi komu svo á Sunnudagskvöld og voru fagnaðarfundir hjá mér og Húnsapúns.
Keyrðum svo heim eftir að hafa grillað á Flúðum. Húnbogi fékk að gista hjá ömmu á Álftanesi mér til mikillar ánægju því var frekar þreytt eftir helgina.
Frídegi verslunarmanna eytt í að gera ekki neitt.......og þá meina ég ekki neitt! Þannig á það aðvera............

2 ummæli:

Unknown sagði...

Gulldrengur ... eða, Gullynja !

Nafnlaus sagði...

Hlín, veist þú ekki hvað sólarvörn er???