mánudagur, september 07, 2009

Skilur heilan helling

Húnbogi er farinn að skilja annsi margt, þó að hann segi kannski ekki mikið.
Þegar ég spyr hvort hann vilji fá að borða þá hleypur hann inn í eldhús.
Og fara að busta tennur eða í bað....hleypur inn á bað.
Þegar ég segi...jæja....núna áttu að fara að sofa, þá hleypur hann að rúmminu sínu.
Svo spyr ég hvort hann nenni með í ruslið. Þá tekur hann og hendir í ruslið.
Ef ég segi honum að skila á sinn stað þá gengur hann frá eftir sig.
Og að sjálfsögðu skilur hann hættu, eða láta kjurt.
Er nokkuð viss um að hann skilji hvað komdu þýðir....en hann hefur ákveðið að það sé eitthvað sem þurfi ekki að gegna.

Fór með hann í leikskólann í morgunn og var búin að klæða hann í útiföt og skó og var eitthvað að vesenast með bakpokann hann. Þá hleypur hann og nær í skóna mína og ætlar að klæða mig í þá. Vildi bara drífa sig út.

Já.... og þegar ég segi að hann hlaupi alltaf hingað og þangað þá er það vegna þess að hann hleypur alltaf.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já skrítið hvað þeir eru jákvæðir og röskir hlauparar á þessum aldri og svo bara rennur það algerlega af þeim í kringum tvítugt !

karlmenn!

kv.Sigga