sunnudagur, janúar 31, 2010

Nýja herbergið hans Húnboga

Húnbogi er búin að losa sig við allt smábarna dótið...og smábarna húsgögnin.
Nú er hann bara með stóra stráks dót og stóra stráks húsgögn. Einu sinni voru þessi húsgögn reyndar stóru stelpu húsgögn en þetta eru gömlu húsgögnin mín. Pabbi smíðaði skrifborðið og rúmmið og Afi í Hveragerði smíðaði stólinn og gólfhilluna. Á rúminu eru vangamyndir af öllum sem í því hafa sofið skornar í tré, og Húnbogi verður ekki skilinn eftir út undan. Það er að sjálfsögðu mynd af mér, og svo Hildi, Hlyni og síðast Heiðrúnu. Bara H!


Húnbogi situr við skrifborðið sitt og les......


Nýja rúmið mátað.


Fyrsta nóttin.

Hún gekk rosalega vel fyrsta nóttin. Hann sofnaði reyndar ekki fyrr en 2 tímum eftir að hann var kominn upp í rúm, en hann var ekkert að kalla eða fara fram úr, hann lá bara og las og talaði við sjálfan sig. Vaknaði svo í morgunn hress og kátur en fór ekki framm úr fyrr en ég kom inn. Kannski enn ekki alveg búinn að átta sig á að það er ekkert mál núna.

2 ummæli:

Unknown sagði...

haha ... hann fattar bráðum að hann getur farið framúr og leikið sér á gólfinu og fullt skemmtilegt.

En ég verð nú að segja ... rosalega smart hestur þarna á kommóðunni, bara alveg sérlega flottur foli.

bleee

Nafnlaus sagði...

Flott !!!!