þriðjudagur, febrúar 23, 2010

svæfing

Fór í mína fyrstu svæfingu í dag.
Verð að segja að ég varð bara fyrir vonbrigðum....var búin að sjá fyrir mér eins og í bíómyndunum þar sem maður telur niður frá 10 og ég ætlaði sko að ná alveg niður í 1. Var ekki alveg svoleiðis. Man bara þegar svæfingarlæknirinn setti upp æðalegg og tók blóðþrýsting og púls og svona. EN man svo ekki einu sinni eftir að hann hafi sprautað mig einu sinni. Vaknaði svo bara allt í einu við einhverja Hjúkku sem var að berja mig og hélt ég væri heima hjá mér......var að dreyma og allt. En ég er rosa ánægð....loksins búin að prófa þetta :)
Fæ annars ekki niðurstöður fyrr en á morgunn þar sem ég svaf svo lengi og læknirinn var bara farinn. Hann sagðist samt ætla að segja mér niðurstöðurnar þegar ég vaknaði.
Nú er ég bara heima hjá mér....hálf þunn og man ekki eftir neinu partýi.
Bíð spennt eftir morgunndeginum.........

sunnudagur, febrúar 07, 2010

Auðveldara en ég bjóst við!

Jæja....nú er Húnbogi búin að sofa í nýja rúmminu sína í 1 viku. Eins og áður var sagt gett 1 nóttinn ótrúlega vel og hann sofnaði eins og engill. Nótt 2 var ekki alveg jafn góð....að vísu var hann algjör engill og ekkert vesen en datt tvisvar framm úr með miklum skell. Eftir seinna skiptið tók ég hann upp í til mín en það var nóg pláss því Helgi var á næturvakt. Eftir þá nótt var helga skipað að redda rúmmgafli sem hann og gerði (að sjálfsögðu, hræddur við kjéllinguna). Næturnar eftir það hafa líka gengið vel. 3 nóttina fór hann reyndar 5 sinnum frammúr að sögn Helga en ég var úti. Eftir það hefur hann ekkert komið framúr heldur bara setið og lesið eða leikið við dótt sem hann fær að taka með sér í rúmmið. Reyndar hef ég oftar en einu sinni komið inn til að breiða yfir hann þegar hann er steinsofnaður og sé þá að hann hefur farið framm úr og náð í eitt af sínu uppáhalds leikfangi (teikniborðið sem hann fekk í afmælisgjöf frá Jóhanni og April) og skriðið með það upp í rúmm og teiknað fallega mynd áður en hann svo sofnar, og aldrei heyrst neinn umgangur frá herberginu hans. Góður í að læðast gaurinn!
Enn hefur ekki komið reynsla á morgnanna, hann er alltaf steinsofandi þegar ég vek hann í leikskólann og um helgina var hann eina nótt hjá ömmu á Álftanesi. Hina nóttina vaknaði hann bara og byrjaði að kalla án þess þó að fara framm úr.

Húnbogi er byrjaður að tala rosalega mikið. Hermir eftir öllu, bæði hljóðum og hreyfingum. Er líka byrjaður að tala bullmál sem enginn skilur en er greynilega að segja eitthvað mjög merkilegt. Hann þekkir flesta líkamsparta og getur bæði bent á þá og sagt hvað þeir heita. Er líka á góðri leið með að læra litina. (Gulan, rauðan, grænan og bláan). Hann þekkir nokkur dýr og getur sagt hvað þau segja. Jább....nú þarf maður sko að fara að passa hvað maður segir, svo hann læri ekki einhver leiðindarorð. Allavega ekki frá okkur, veit að mörg börn læra blótsyrðin á leikskólanum af hvort öðru en lítið hægt að gera í því ....... því miður.