Fór í mína fyrstu svæfingu í dag.
Verð að segja að ég varð bara fyrir vonbrigðum....var búin að sjá fyrir mér eins og í bíómyndunum þar sem maður telur niður frá 10 og ég ætlaði sko að ná alveg niður í 1. Var ekki alveg svoleiðis. Man bara þegar svæfingarlæknirinn setti upp æðalegg og tók blóðþrýsting og púls og svona. EN man svo ekki einu sinni eftir að hann hafi sprautað mig einu sinni. Vaknaði svo bara allt í einu við einhverja Hjúkku sem var að berja mig og hélt ég væri heima hjá mér......var að dreyma og allt. En ég er rosa ánægð....loksins búin að prófa þetta :)
Fæ annars ekki niðurstöður fyrr en á morgunn þar sem ég svaf svo lengi og læknirinn var bara farinn. Hann sagðist samt ætla að segja mér niðurstöðurnar þegar ég vaknaði.
Nú er ég bara heima hjá mér....hálf þunn og man ekki eftir neinu partýi.
Bíð spennt eftir morgunndeginum.........
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli