Jæja...nú styttist í að maður komi heim og ekki frá því að mann sé bara farið að hlakka til....
Það fyrsta sem ég ætla að gera er að knúsa Húnsapúns.
Er búin að fara í H&M og keypti svo mikið af fötum á Húnboga að ég fékk gjafabréf upp á 5000 kr. Var nú ekki lengi að eyða þeim heldur...hehe :)
En því miður byrjaði ferðinn ekki allt of vel því að á síðustu stundu var okkur sagt að við þyrftum að taka lestina frá flugvellinum til jönköping þar sem við erum búin að vera. Upplýsingarnar voru rangar og í stað þess að borga 100-200 kr sænskar (2000-4000 sirka) í lest þá kostaði það okkur 1050 kr sænskar (18.000 kr ísl) og þar með næstum helmingur eyðslufésins farinn í súginn.....
o jæja....Helgi tekur bara nokkrar aukavaktir ;)
Á eftir að fara eina verslunarferð í viðbót og finna eitthvað handa Helga, nú og ef ég finn ekkert handa honum þá á ég ekki neinum vandræðum með það að finna eitthvað handa mér....tíhí.
Annars bara búið að vera mjög gott veður, búið að fara í smá göngutúra og kíkt á smá djamm um helgina. Sænskt djamm er ekkert lýkt því íslenska......
Myndir og fleyra skemmtilegt þegar ég kem heim.
hej do
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já, þetta var ekki alveg eins og við bjuggumst við.
Stutt í heimferðina og ég bara get ekki beðið enda held ég að við höfðum þessa ferð alltof langa, en mar er bara vitur eftir á :)
Gudda
Skrifa ummæli