miðvikudagur, febrúar 09, 2011

Bootcamp.. Mæling nr 3

Jæja...alltaf minnkar maður og minnkar.

hér koma niðurstöður úr mælingu nr 3 í bootcamp sem voru gerðar í dag.

Maeling Date Age Weight Fatpercent Biceps Abdomen Hip Thigh
1 2010-11-02 30 75.4 28.4 28 80 101.5 50.5
2 2010-12-14 30 75.1 24.2 27 78 100 49.5
3 2011-02-09 31 74.2 22 28 76 99 50

Mér til mikillar ánægju náði ég takmarkinu en það var að missa 2 % fitu í þessari törn. Vöðvarnir eru farnir að tútna út á lærum og upphandleggjum en magi og mitti minka enn :)

Mætti samt bara á 12 æfingar af 18 þessa törn vegna annarra hluta sem gengu fyrir. Hef heldur ekki verið eins ströng á mataræðið og ég var í 1 törninni. Leyfði mér meira núna.
En næsta törn verður tekinn með trompi.....!!!
Ætla að reyna að komast niður í 20 -21 % fitu fyrir næstu mælingu.

Annars hef ég tekið eftir því að buxur eru hættar að tolla uppi og ég þarf að bæta gati á beltið. Hlutir sem ég keypti út í USA og pössuðu fínt í byrjun.

Jább, Jább. 3 tarnir eftir og svo kaupi ég kannski fleyri!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvernig væri að koma með fyrir og eftir mynd?

Annars er ég búin að finna crossfit hér, bara aðeins og langt í burtu núna, ætla þó defenetly að pæla í því eftir sumarið. Pilates er fyrst á dagskrá ;) get líka tekið strákinn með þangað.