Maeling | Date | Age | Weight | Fatpercent | Biceps | Abdomen | Hip | Thigh |
1 | 2010-11-02 | 30 | 75.4 | 28.4 | 28 | 80 | 101.5 | 50.5 |
2 | 2010-12-14 | 30 | 75.1 | 24.2 | 27 | 78 | 100 | 49.5 |
3 | 2011-02-09 | 31 | 74.2 | 22 | 28 | 76 | 99 | 50 |
4 | 2011-03-23 | 31 | 70.9 | 19.7 | 27 | 74.5 | 98 | 49 |
föstudagur, mars 25, 2011
Bootcamp: mæling 4
Jæja...þá eru niðurstöður komnar frá Bootcamp. Þrátt fyrir að hafa verið frá í 3 vikur þá náði ég takmarkinu og vel það. Er langt komin í lokatakmarkið og ég veit að ég næ því í næstu mælingu (19 %). Ég er bara annsi ánægð og þjálfarinn sagði að mér gengi mjög vel :))
laugardagur, mars 19, 2011
Íþróttaskólinn
Byrjuðum í Íþróttakóla FH í morgunn. Hann er alla laugardaga frá 9:30 til 10:30. Húnbogi var eins og hann hefði bara ekki annað gert en að fara í gegnum svona þrautabrautir. Hann var snöggur og bara furðu fimur. Klifraði yfir hindranir, hoppaði yfir keilur, fór í kollhnísa, tók spretti, hoppaði niður úr háum hæðum, fór jafnvægisslár og fleyra og fleyra eins og ekkert væri. Átti það samt til að missa athyglina og hlaupa eitthvað út í buskan, og sumt fannst honum skemmtilegra en annað.
En mér fannst hann bara alls ekki stirður........

Við vorum snemma í því og fengum að leika okkur áður en tíminn byrjaði.

Hokký varð strax mjög vinsælt hjá Húnboga

Spretturinn tekinn.

Hoppað og skoppað.

Frjáls tími í lokinn, prófuðum að draga í smástund en hann var snöggur að fara í hokkýið aftur.

laugardagur, mars 12, 2011
foreldrafundur
Ég fór á foreldrafund í leikskólanum síðasta fimmtudag.
Umræðupunktar:
Þátttaka barnsins í
hópavinnu: Á erfitt með að einbeita sér í stærri hópum og á það til að trufla hin börnin, einbeitir sér betur í 6 manna hópum.
söng og samverustundum: Það sama, á erfitt með að einbeita sér og dettur oft inn í eigin heim eða truflar.
leik úti sem inni: leikur sér mjög vel bæði inni og úti en unir sér stutt við hvern hlut. Einbeittinginn aftur......
Hreyfiþroski
grófhreyfingar: Er stirður og á erfitt með t.d að labba út í hrauni, mælt með íþróttaskóla.
fínhreyfingar: Mjög góðar, á auðvelt með að púsla, pinna og perla svo dæmi séu tekin....nú er verið að kenna honum að klippa
sjálfshálp: Er latur við að klæða sig sjálfur í og úr, fær of mikla þjónustu heima fyrir en nú verður tekið á því
Félagsþroski
samskipti við börn: slær við minnsta tilefni og hrindir, jafnvel við ekkert tilefni, strax tekið á því og settur í skammakrók. Þar fyrir utan gott.
samskipti við fullorðna: Sama, Fóstrunum finnst hann hafa versnað eftir síðustu veikindi, þyngri í skapinu, hvort sem það er tilviljun eða ekki? Getur verið mjög þungur og lengi í fýlu og þá er ekki hægt að tjónka við hann, en þegar hann er glaður þá birtir alveg yfir honum og hann geislar :)
Málþroski
málskilningur: skilur allt sem sagt er við hann
tjáning: mjög góð
orðaforði: mjög góður
tekur barnið þátt í samræðum: mjög lítið (eiginn heimur)
Talar oftast um sjálfan sig í 3 persónu sem fóstrunum þykir sérkennilegt
Vitsmunaþroski
fer barn eftir fyrirmælum og reglum: Þegar honum hentar, er að kanna hvað hann kemst upp með og finnur að hann hefur vald til að ráða soldið sjálfur.
segir barnið frá liðnum atburðum: nei (ég þarf oft að draga upp úr honum hvað var gert í leikskólanum) Hann á það samt til að tala um hluti sem gerðust fyrir nokkrum vikum alveg upp úr þuru
einbeiting: á erftitt með að einbeita sér í stórum hópum og á það til að trufla eða hverfa inn í eigin heim
Matmálstímar og hvíld
hvernig borðar barnið í leikskólanum: Mjög vel, en honum finnst sko grænmeti ekki gott! Fær að skammta sér sjálfur grænmeti og hvattur til að smakka
svefn í hvíld: sefur ekki, situr með þeim sem eru vakandi í sófa og hlustar á sögu
Svefn heima: sofnar í kringum 8 eftir að svefntíminn var tekin af honum í leikskólanum í staðin fyrir 10 eða 11
Húnboga finnst gaman í leikskólanum og líður vel
Sett út á skítug föt? Mér persónulega finnst óþarfi að skipta um föt á hverjum degi þó að það sé smá blettur á þeim. Talað um að setja hann í bað annan hvern dag, sem mér finnst líka of mikið.....
Fóstrunum finnst Húnbogi skemmtilegur strákur og hress, og geislar af honum þegar hann er upp á sitt besta.

miðvikudagur, mars 09, 2011
komin í sama formið
Jæja...þá er loksins hægt að segja að veikindunum sé lokið. Húnbogi var með niðurgang í nokkra daga og magaverki. Vildi hvorki borða né drekka en tókst þó stundum að koma niður í hann nokkrum sopum af gatorate. Var farinn að pissa brúnu í lokin (sem er merki um vökvaskort) og var hann vel vökvaður þar sem listin var að koma til baka.
Ég tók mína síðustu sýklapillu í dag og mikið er ég fegin því. Þeim fylgdi oft mikil ógleði og stundum uppköst. Er ennþá með smá kvef og nefrennsli en ekkert sem angrar mig. Byrjuð á fullu aftur í bootcamp en er ekki viss um að ég nái takmarkinu mínu þar sem ég missti af helmingnum af námskeiðinu (3 vikur). Kemur í ljós.....
Stefni á íslandsmeistaramótið í bogfimi í lok mars og ætla mér stóra hluti.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)