Jæja...þá er loksins hægt að segja að veikindunum sé lokið. Húnbogi var með niðurgang í nokkra daga og magaverki. Vildi hvorki borða né drekka en tókst þó stundum að koma niður í hann nokkrum sopum af gatorate. Var farinn að pissa brúnu í lokin (sem er merki um vökvaskort) og var hann vel vökvaður þar sem listin var að koma til baka.
Ég tók mína síðustu sýklapillu í dag og mikið er ég fegin því. Þeim fylgdi oft mikil ógleði og stundum uppköst. Er ennþá með smá kvef og nefrennsli en ekkert sem angrar mig. Byrjuð á fullu aftur í bootcamp en er ekki viss um að ég nái takmarkinu mínu þar sem ég missti af helmingnum af námskeiðinu (3 vikur). Kemur í ljós.....
Stefni á íslandsmeistaramótið í bogfimi í lok mars og ætla mér stóra hluti.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli