Minnti mig strax á Húnboga og Bangsa.
Man eitt skiptið vildi Húnbogi alls ekki fara að sofa, ástæðan var tröllin inn í herberginu hans.
Ekkert gekk að tala hann til eða reyna að koma honum í trú um að tröllin væru góð og vildu bara vera vinir hans, og á endanum var Bangsinn látinn hafa trésverðið hans Húnboga og sagt að Bangsi myndi berja tröllin ef þau kæmu of nálægt. Húnbogi fór sáttur að sofa og svaf vært alla nóttina.
Um morguninn var Húnbogi enn steinsofandi með sverðið í fanginu. Sagði hann seinna frá miklum frægðarsögum hans og Bangsa, og hvernig þeir hefðu verið að berja tröll alla nóttina saman.
Eftir þetta komu ekki fleyri tröll í herbergið hans Húnboga og Bangsi passar líka vel upp á hann hverja einustu nótt :)

1 ummæli:
Yndisleg mynd - sé minn alveg í henni.
Leiðinlegt með frænda og frænku en þið bítið á jaxlinn og haldið áfram að klífa fjallið - knús Sigrún frænka.
Skrifa ummæli