Hér er nú aldeilis búið að taka til hendinni síðustu viku.
Pabbi byrjaði að setja upp millivegginn um hvítasunnuhelgina og kláraði það á sunnudeginum.
Eins og sést er gott að hafa góðan hjálparmann sem mælir allt.....
Veggurinn tilbúin og byrjað að raða inn í tölvuhornið.... nokkrum svörtum ruslapokum var líka hent úr tölvuherberginu mér til mikillar gleði en olli Helga miklu hugarangri.
Undirbúningur fyrir málingarvinnu í Huldu Rúnar herbergi.
Húnbogi fékk að sjálfsögðu að hjálpa enda mikil hjálparhella.
Málað af hjartans lyst.
Nokkuð gott hjá stráknum, hann hefur þetta greynilega ekki frá pabba sínum, en sá kauði fékk ekki að koma nálægt málingarvinnunni vegna fyrri reynslu....
Og hér er svo tölvuhornið í öllu sínu veldi.
Helgi fékk meira að segja að kaupa bókaskápinn í horninu fyrir nördadótið sitt og bækurnar.
Og hér eru snagarnir fyrir litla fólkið, (Já Sigga, þú mátt hengja úlpuna þína þarna)
Rosalega flott alltsaman.......
Og ég minntist á það að þvottaherbergið hefði líka verið tekið í gegn, skápar teknir niður, snúrur settar upp og skúfur fyrir óhreynt tau...... auk þess sem nokkrum svörtum ruslapokum var hent þaðan út mér til mikillar gleði en Helga til mikillar mæðu.
Næst á dagskrá er að sækja dót í geymslu á Stokkseyri, rimlarúm, skiptiborð og fleyra dóterir og koma öllu haganlega fyrir í Huldu herbergi, það verður líklega klárað núna um helgina, Svo á bara eftir að redda gardínum og þá er eiginlega bara allt komið.
Rétt rúmar 5 vikur eftir í komu litlu systur
Over and out....