Jæja, nú er ég loksins búin að minnka við mig vinnuna. Vinn 8 til 13 og tek sumarfrí eftir hádegi. Verð þannig í mánuð ef allt gengur að óskum og þá á ég nógu marga sumarfrísdaga til að taka fram að settum fæðingardegi og meira segja 3 auka :)
Nú býð ég bara eftir að pabbi skelli upp einum vegg og eftir það hefst fjörið. Færa tölvuherbergið fram, mála Huldu herbergi og undirbúa það. Ná í dót á Stokkseyri og fara í gegnum barnafötin hans Húnboga, þrífa bílinn (aðalega að innan), kaupa gardínur og hillur og sittlítið af hverju.
Af Huldu Rún er það að frétta að pissublaðran hefur verið vinsæl sem trampólín. Þarf oft að hafa mig alla við að missa ekki í brækurnar.....
Ég er bara annsi góð, er búin að jafna mig held ég af blóðleysinu og orkan komin til baka, þó maður þurfi að hvíla sig nokkrum sinnum í tröppunum á leið upp. Grindargliðnuninn hefur ekki verið með neitt vesen enda fengið mikla hjálp í vinnunni og er núna komin í starf þar sem ég þarf svo til engu að lifta. En rifbeinin eru það eina sem angra mig núna, þrýstingurinn er rosalegur á þau innanfrá og ég á erfitt með að sitja eða standa í langan tíma, verð að teygja vel úr mér og helst liggja til að létta á þrýstingnum.
Ég held að ég sé komin með stærri bumbu núna heldur en þegar Húnbogi fæddist.
Þess á milli sem ég er að undirbúa komu Huldu sit ég bara og sauma. Krosssaumsmynd sem mun hanga í herberginu hennar. ( Húnbogi fékk bangsamynd).
Já... og við erum núna komin með allmennilegt þvottaherbergi, skáparnir voru teknir niður, litli ísskápurinn færður niður í geymslu, málað, settar upp snúrur og keyptum skúffugrindur fyrir óhreyna tauið. Nú er nóg gólfpláss og ekkert drasl, og við þurfum ekki að hafa snúrur og föt til þerris frammi :)
Af Húnboga er það að frétta að hann talar meira en nokkrum sinnum fyrr. Hann getur verið rosaleg orkusuga, er á fullu og talar og talar en sem betur fer þarf maður ekkert að hafa fyrir honum og ég get setið í sófanum og þarf ekkert að elltast við hann. Hann býður spenntur eftir komu litlu systur
Húnbogi Bjartur í flugvélinni sinni....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ég vil fá myndir af húsinu, takk fyrir
Skrifa ummæli