fimmtudagur, júlí 19, 2012

Leifið mér að kynna.....

....... Hulda Rún Helgadóttir

Ég fór í skoðun komin 41 v og 1 d. Þá hafði ljósmóðir áhyggjur af að legbotnin var ekki búin að stækka í 3 vikur og þessa vikuna minnkaði hann. Hún hringdi upp á spítala og ég var send í betri skoðun. Þar kemur í ljós að ekkert legvatn er til staðar og ég send í gangsetningu um leið og losnaði pláss. Símhringin kom 8 næsta morgunn.
Við förum upp á fæðingadeild og beint í rit. Ekkert bendir til þess að fæðing sé einu sinni á næsta leiti. Um 10 leitið fæ ég stílinn og ljósmóðirinn segir að ég verði að vera í ritinu í klukkutíma og svo megi ég fara að hreyfa mig um. En við fyrsta samdrátt sem er mjög vægur dettur hjartslátturinn niður hjá stelpunni í 40 slög. Held að 120 -150 sé eðlilegt) Eftir það fékk ég ekki að fara fet úr ritinu. Keisari var undirbúin ef út í það færi og fylgst var vel með ritinu. Í hverjum samdrætti datt hjartslátturinn niður en ekki svona rosalega eins og fyrst. Þetta var vegna þess að ekkert legvatn var til að verja stelpuna eða naflastrenginn.
Klukkan 2 eru belgirnir rofnir. Ljósan biður mig um að rembast pínu til að sjá hvort eitthvað vatn komi, en það kom ekki dropi. En við þetta byrja loksins eitthvað að gerast í alvöru. Reglulegir samdrættir og klukkan 4 var ég komin með 4 í útvíkkun og þá fóru verkirnir að byrja.  Eftir um það bil klukkutíma þegar hríðarnar voru búnar að vera mjög harðar og svo stutt á milli að ég gat ekki hvílst var ég farin að væla um deyfingu. En þá var útvíkkunin eiginlega búin og mér sagt að það tæki því varla. Það myndi hægja á fæðingunni og litla stelpan þoldi ekki mikla bið. Hjartslátturinn datt mjög oft niður.
Rembingsþörfin kemur loksins en þá virðast hríðarnar detta alveg niður. Það var langt á milli og allt of stuttar, ég hafði varla tíma til að rembast. Og svo kemur í ljós að hún snýr andlitinu upp og er að snúa sér sjálf í fæðingarveginu sem gerði þetta allt miklu erfiðara.
Það munaði víst bara hársbreitt á að sogklukka yrði notuð en sem betur fer náðum við að klára þetta sjálf, en út af því hverstu hratt hún þurfti að fæðast fór spönginn soldið illa.
Ég er að drepast í botninum og mér finnst fyndið hvernig gamla ljósmóðirinn lýsti þessu. " Það er eins og maður hafi fengið handsprengju í rassgatið"
Hún fæddist klukkan 17: 35, 18 júlí 2012.... tæpir 2 tímar af verkjum
53 cm og 3,8 kg

En stelpan var fljót að jafna sig eftir fæðinguna og tók brjóstið vel hálftíma eftir fæðingu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þúsund knús til hennar frænku minnar , get ekki beðið aðhalda á henni - til hamingju
Sigrún frænka