fimmtudagur, janúar 31, 2013

Hulda komin á fulla ferð....

 Þá er Hulda Rún komin á skrið, þó hún skríði kannski ekki beint, þá er hún byrjuð að spyrna sér og toga sig áfram á maganum..... Eltir mann bara út um allt, eða svona næstum því, er ekki alveg nógu snögg en gerir sitt besta. Er byrjuð að skoða mikið í kringum sig og var búin að hífa sig upp á stóra blómapottinn og byrjuð að fikta í steinunum þar. Eins gott að fylgjast vel með henni núna.

Húnbogi búinn að búa til slóð fyrir hana svo hún rati aftur á leiksvæðið sitt.

Pósar bara fyrir myndavélina. Var að reyna að ná mynd af henni þar sem hún fer upp á 4 fætur, ekki á hnéin (bjarnaganga)
Vídjó af Huldu á fartinum   smellið hér til að skoða

Engin ummæli: