Nú er gaman að fara út í búð með Húnboga....
Maður er eitthvað svo montinn með að hafa hann í kerrusætinu, ekkert smábarnakerra lengur sko.
Fór í Fjarðarkaup í dag að montast og á kassanum er gömul kona að raða í pokann sinn og fannst hann agalega spennandi. Sömuleiðis fannst Húnboga hún afskaplega áhugaverð. Þau töluðu saman í smástund og svo spurði hún hvað hann væri gamall. 8 mánaða segir maður náttúrulega og hvað segir hún þá ekki.......
"Nú! Er hann svona fullorðinn."
Vá... Maður verður bara að fara að huga að fermingu. Svo sagði hún að í gamla gamla daga(á hennar ungu árum) hefðu börn á þessum aldri átt erfitt með að halda haus..... ég veit ekki hvað til er í því...mér finnst Húnbogi frekar seinn. Sagði henni ekkert frá 7 mánaða stelpunni sem er með Húnboga í sundi og byrjaði að skríða 6 mánaða.
Hann getur líka setið á gólfinu núna og leikið sér. Kann reyndar ekki alveg að fara aftur á magann nema skella hausnum.....búinn að græða eina kúlu. En þannig var það nú líka þegar hann var að byrja að velta sér yfir á bakið. Maður hléður bara púðum og hefur mjúka dótið uppi við svona rétt á meðan hann er að æfa sig.
Á morgunn mun Húnbogi fá alvöru hafragraut í morgunn mat. Ekkert barnagrautarsull. Hann getur líka borðað brauð með smjöri og kæfu. Og honum finnst hreinn sítrónusafi og slátur gott.
Jú. Hann er að verða pínu fullorðinn...................
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
bíddu... á ekkert að segja frá öllum fíluköstunum sem sumir tóku þegar þeir voru lagðir á gólfið í ákveðnum bæ sem heitir Vogar ???
Mér finnst líka að þú eigir að fara fyrr að sofa (s.s Hlínsan ekki barnið).
bless
Skrifa ummæli