Ekki var skrallið í gær alveg jafn stutt og ég hafði hugsað mér. Kom heim klukkan hálf 4.
Fór í keilu með Guddu og þeir í keiluhöllinni selja ekki leiki lengur heldur mínútur. Það fór þannig að í síðustu lotunni minni var lokað á leikinn og ég fekk ekki að klára....tíminn bara útrunninn takk fyrir. En það er allt í lagi. Ég vann samt!
Ég og Gudda lentum svo í margvíslegum ævintýrum á bæjarröltinu, mörg kynjatröll á ferðinni og margt hægt að gera sér til dundurs. Við dunduðum okkur þó mest við það að eiða péning á barnum. Það er nú ekki fyrir hvern sem er í þessu efnahagsástandi og sýnir bara hvað 2 gamlar kjérlingar geta verið hugrakar og hvað ævintýraþráin er sterk.
Háin 3 fóru í dag í heimsókn til Þuru ömmu upp á spítala og var þar mikil gleði, knús og gaman. Og bara svona í leiðinni var kíkt á mömmu á barnadeildinni. Þar fórum við framhjá vökudeildinni og ekki laust við að smá tilfinningar og endurminningar streymdu fram.
P.S Matur er góður
1 ummæli:
Mikið var að ykkur finnst þið nógu merkileg í blogg... ég er með tvö blogg, svo merkileg er ég! Að vísu les enginn bloggin mín svo......
það er barn að slefa á mig, svo ég segi ekkert meira - jú annars... SKRAMBI FLOTT Á BYSSUMYNDINNI... og iss ég tek miklu betri myndir af Hlín en hann þarna whatshisname!
kv.sigga
Skrifa ummæli