föstudagur, október 17, 2008

9 mánaða


Nú er Húnbogi orðin 9 mánaða .... vá ... bara 3 mánuðir í 1 árs afmælið. Nú er hægri efri framtönninn að koma niður,varla nema 2 dagar í að hún rífi sig í gegn. Jafnvel á morgunn.

í morgunn passaði ég Hrafnkel á meðan Sigga fór í klippingu og Hrafnkeli fannst voða stuð að gefa Húnboga seríós, eða nammi eins og hann kallar það.

Ég var að fá fullt af kössum sem mamma hefur pakkað vandlega öllu mínu dóti í. Föndur, sögur, skólaritgerðir og dót. Ég henti nú helmningnum en annað ætla ég að geyma í 30 ár í viðbót. Húnbogi græddi líka pínu á þessu. Á myndinni er hann í bol sem ég saumaði í barnaskóla með Pésa sem mamma saumaði og bangsi sem ég vann á tombólu í tívolíi (soldið stelpulegur þessi bolur en bara svo þið vitið það þá er hann strákalegur aftan frá). Svo var fullt fleyra sem hann mun geta notað eftir ár eða svo auk stelpudóts sem maður verður að halda í fyrir framtíðarsystkini.

3 ummæli:

Unknown sagði...

víí, gaman í sundi...
... fyrir þá sem deyja ekki í klórnum anyway.

Húnbogi bara kennir Hrafnkeli að synda, málið leyst.

Og svo gaman að sjá þá félaga leika "saman". Mér finnst samt best að Hrafnkell er ekki vondur við Húnboga, eða allavega ekkert svo vondur við hann... kannski verða þeir í alvöru bestu vinir ;-D

...nema Húnbogi verði vondur við Hrafnkel... plö

Nafnlaus sagði...

Alltaf sætastur

Nafnlaus sagði...

Jeeeeiiii
Írena og Húnbogi bestasti frændi fá að leika saman á eftir.
Þú veist að Írena þolir orðið ekki mótmæli og hikar ekki við að sýna það!!!! Bæði í orði og gjörðum :s-