þriðjudagur, október 21, 2008

Flutningar

Við fórum og hjálpuðum Siggu og Jóa að flytja úr einskinsmannslandi síðasta sunnudag. Þetta var hörkupúl enda 3 hæðir og enginn lifta. (og ég ekki í neinu formi) Svo var líka þrifið og þrifið og þrifið, og ég fekk harðsperrur..... það segir örugglega eitthvað um ástand míns heimilis ........
Og dagslaunin voru pizza, kjúklingavængir og brauðstangir.....mmmmmmm. Húnbogi var svo heppinn að fá að vera í pössun í Mosó þar sem Írena var líka í pössun. Örugglega verið nóg að gera á þeim bæ þennan dag.

Ég uppgvötaði hina fullkomnu aukavinnu fyrir mig. Var að skoða saumadót á netinu og sá þá að það er kona hér á íslandi sem fær stundum sent svona módelmyndir. Semsagt nýtt sem verið er að hanna og á að setja á markað. Hún saumar og sendir svo til baka. Eyddi gærkvöldinu í að gúggla saumafyrirtæki og spurjast fyrir. Nú er bara beðið eftir svörum....... Annars er það í fréttum að ég mun klára bangsamynina á morgunn....vííí. Og þá ætla ég að byrja á jólaverkefninu mínu :)

Fann samt þetta á netinu...til einhverjar 12 tegundir á 350 stk. Þetta er svona plast javi og svo saumar maður bara og klippir og þá er komið þetta fína jólaskraut.....ætla að panta allar tegundirnar og gefa sjáfri mér í afmælisgjöf...því fyrir þá sem ekki vita...þá á ég bráðum afmæli.....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jamms, 15.nóvember, ef ég man rétt. Gerirðu þér grein fyrir því að við erum bráðum að verða 25 ára?? hehehehe

Flottar myndir af stráknum!!! ;)

Kveðja frá Jóni, Sólrúnu og Kötlu Sól

Unknown sagði...

Ji hvað Húnbogi á bráðum gamla mömmu! púff!

Já það var nú gaman og glatt á hjalla síðastliðinn sunnudag... ég er ennþá að jafna mig í mjöðminni... svona er maður eftir barnseiginir, ónýtur, lélegur og gamall! fjíú, eins gott að drengirnur komi til með að vera þakklátir og almennilegir við okkur þegar þeir eldast...




... óskhyggja