Nú er námskeiðið búið og maður verður að spara doldið núna, þannig að það verður tekinn pínu pása. Fara bara sjálf í sund og halda þessu við hjá honum Húnboga.
Hann er farinn að príla út um allt ef honum er sleppt lausum. Verst að það er honum oftast ofviða, vantar enn pínu kraft í lappirnar, og hrinur þá niður aftur. Getur staðið upp ef hann situr og getur sest ef hann liggur ef réttu tólinn eru við hendina (rimmlarúm, borðstofuborð, bókahillur, ég.....) Prófaði að setja hann í fangelsi (leikgrind) og dugði það honum svona í hálftíma. Svo var það ekkert gaman lengur. Enda ekkert gaman í fangelsi býst ég við.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
híhí.. jáhh.. það er varla gaman í fangelsi.. verður að hafa smá frelsi.. :P
p.s Hlín.. djamma um helgina?? ;P
hey, ég skal koma með í sund næst
kv guddan
Skrifa ummæli