mánudagur, október 27, 2008

Viðburðar rík helgi.

Á föstudag fórum ég og Elín að heimsækja nýjustu frænkuna hana Kötlu Sól. Þar var boðið upp á vöfflur, nammi namm. Fór svo um kvöldið á kjéllinakvöld með Þuru ömmu, Sigrúnu frænku, Möggu og dætrum og þar var kínverskur matur. Húnbogi fekk að koma þó hann sé svo sannarlega enginn kjélling.
Fór á laugardaginn með Húnboga á korpúlfsstaði með Siggu og Hrafnkeli og við vorum listamenn....eða hluti af listaverki....eða eitthvað. Allavega munum við fá afrit af þessari list og allir geta þá bara dæmt um það sjálfir. Fórum niður í fjöru í kuldanum og sungum sofðu unga ástin mín .......
Fór í halloween partý seinna um kvöldið með Guddu. Og að sjálfsögðu var maður klæddur í stíl við þemað......búúúú.
Á sunnudagsmorgni fórum við í hádegismat upp á Álftanes þar sem maður kom 3 pokum ríkar út. Það var nefnilega töskuheimsókn því Ingi og Jóhann voru að koma frá USA..
Um kvöldið var svo matur í Mosó þar sem greyið Húnbogi var afskaplega misskilinn eitthvað. Hann er nefnilega að taka tennur og var frekar pirraður eitthvað en kom svo í ljós að hann var bara svangur. Var þá örugglega búinn að bíða eftir mat í allavega 2 tíma.
Læra að tala takk!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

fyrsta orðið verður örugglega: Gudda:) hehehehehe

Unknown sagði...

Ég er veik eftir þennan laugardag, HÓST HÓST HÓST.

ÉG varð lead singer í singstar á laugardagskveldi í hrekkjavökupartýinu sem ég fór í... VANN SKO Díönu söngfugl og Önnu sem er líka söngfugl... málið var að ég var í búning sem kjúklingavíkingur og var því, alvöru söngfugl !!!

langsótt.

pff

Nafnlaus sagði...

pff... hrekkjavöku partý heila VIKU fyrir sjálfa hrekkjuvikuna.. er það nú... iss...
(ekki var mér boðið haaaaa!!) :P
kv,guðný