sunnudagur, október 05, 2008

Hanzadagar


Í gær voru Hanzadagar í Hafnarfyrði. Eitthvað verið að halda upp á þessa þýsku kaupmenn sem voru hér á miðöldum. Við fengum samt að vera með, nokkrir útvaldir víkingar (þeir bestu og klárustu) að sýnahandverk, eldsmíði og bogafimi þó að við séum ekki frá því tímabili. Gott að vera vel ullaður í kuldanum sem var. Þarna voru líka 2 hirðfífl, bettlari, söngur og lúðraþytur. Matur sem þótti hnossgæti á þessum tíma og var maður tíður gestur á þeim sýningarbás. Og svo komu skilmingarfélagar úr ólimpísku skilmingarfélaginu og sýndu hvernig á ekki að vera kúl. Með mjó loftnet og þóttust vera að berjast.....piff.... Enda leist þeim nú ekki á blikuna þegar einn Rimmugýgjarfélagi sótt sverð sinn og skjöld, og kom á móti þeim.

Um kvöldið kíkti ég síðan aðeins út á lífið og ekki þótti mér það líf mjög skemmtilegt. Kom snemma heim og fór að horfa á startrek.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já ertu að horfa á vinkonu okkar captain kathryn janeaway? Það á víst að koma ný star trek sería. Veit ekki hvenær en las það á netinu.

Nafnlaus sagði...

ómælord... ný sería... I'll die.

en hentugt að ég var gubbandi heima en ekki frjósandi í snjó og þýskum kulda... HENTUGT.

og hættu svo að kalla Jóa hriðfífl.. hann er kominn með ógeð á þessu !

kv.sigga