föstudagur, nóvember 07, 2008

Aftur í sund


Okkur var boðið að koma aftur í ungbarnasund og skipta greiðslunni niður. Ég þáði það með þökkum enda frekar svekt yfir að hafa ekki haft efni á því, því Húnboga finnst þetta svo gaman og hefur líka gott af þessu. Það var mikið hlegið og sundkennarinn knúsaður og slefaður. Erum í nýjum hóp með nýju fólki og ekki finnst Húnboga leiðinlegt að fá alla þá athygli sem hann fær þegar hann brosir og hlær framan í heiminn. Þá magnast gleðin margfallt og hann skríkir og skvettir í allar áttir. Gamli hópurinn var orðinn allt of vanur þessu.

Fór svo á æfingu í gær, þar sem Elísabet nokkur María kom og hélt Húnboga félagskap á meðan. Ég var mjög klár og tókst að fá höfuðhögg frá sjálfri mér með spjótinu mínu. Geri aðrir betur.

Húnbogi getur staðið upp við hluti núna. Langar til að benda á nýtt myndskeið hér á hægrikantinum.

Er búin að vera mikið upptékinn síðustu daga, fékk nefnilega afmælisgjöfina mína (frá mér til mín) síðasta þriðjudag og saumi saumi saum.... talandi um saum. Best að fara hætta þessu og fara að sauma...........

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

FLOOOOTTASTUR!!!!!!!!!!