Sigga leigði stúdíó (ljós, bakgrunn og fleyra) til að taka jólamyndir af þeim litlu. Íbúðinni minni var breytt í ljósmyndastofu yfir helgina þar sem Guðný og Vigdís komu með sín kríli og reyndu að hafa sæt, fín og stillt. Sigga tók líka nokkrar myndir sem hún ætlar kannski að nota til að sækja um í listaháskólanum.
Fór í afmæli til Guddu þar sem ákveðinn upptakari vakti mikla lukku hjá mér og hélt mér í stuði langt fram á kvöld. Fór svo í víkingapartý þar sem nýr félagi var tekinn inn í Rimmugýg og hélt stuðið áfram langt fram á nótt. Húnbogi var í pössun yfir nótt á Álftanesi meðan á öllu þessu stóð.
Stuðið var ekki jafnmikið þegar ég vaknaði næsta dag en þá tóku hausverkur og ógleði öll völd. Lét mig samt hafa það að mæta í hádegismat á Álftanes, gera Húnboga fínan fyrir jólamyndatökuna og fór svo í 30tugs afmæli til Lindu.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
mér skilst nú að þetta hafi verið meira en bara ógleði...
og bara láta þig vita, ég fór yfir myndabunkann í gær og HÚNBOGI ER BARA ÝKT SÆTUR... hann verður módel eins og mamma sín. Myndirnar af Helga og Húnboga, tjah... þær eru amk listrænar.
peace
til hamingju með afmælið á morgun Hlín.Ég fékk síðuna ykkar hjá mömmu þinni.gaman að kíkja hér og fylgjast með.Húnbogi alltaf jafn hress,ég hugsa oft um hvað hann hló mikið í stúdentsveislu Hlyns.
kveðja ruth frænka á ská
Skrifa ummæli