ÉG á ammæli eftir 10 klt. Planið er að baka vöflur og súkkulaðiköku og bjóða gestum og gangandi að gefa mér pakka í skiptum fyrir gúmmilaði.
En fyrir utan þessa merkilegu stund sem nálgast nú óðfluga þá er maður búin að plana margt og gera minna. Fórum í fjölskylduljósmyndun með tengdafólki mínu í okkar fínasta pússi í dag. Ekki fannst mér það nú neitt ofsalega gaman. Búin að vera að sauma á fullu og pínu að reyna að taka til þegar ég nenni og bráðum koma jólinn......
En fyrst.....
AFMÆLIÐ MITT.......og elínar......og MITT!
Ég og Helgi erum búin að ákveða að mósaíkflísa veggin milli stofu og svefnherbergisgang með birkafléttu (sjá mynd hér að ofan sem ég hannaði og teiknaði í tölvunni)) sem er að sjálfsögðu frá víkingatímanum. Samt ekki vegginn sjálfan. Tréplötu sem við festum bara á vegginn og þá getur þetta fylgt okkur í næstu húsnæði ef skipt verður. Þetta eru samt ekki endanlegir litir...ennþá aðeins verið að spá og spekúlera í þeim. Þetta verður svaka stuð og ennþá flottara.....
Til hamingju með afmælið ég....
kveðja
allrasætasta afmælisbarn í heimi sem þarf ekki að fara snemma að sofa því það er pabbatími á morgunn!
2 ummæli:
Til hamingju með litlu stundina litla systir. ;)
Hlakka til að fá vöfflur og súkkulaðiköku á eftir, nammi namm...
Já þú... þið eruð gamlar og nú er aðeins eitt stutt ár eftir í ellina.
Þar sem ég er nokkuð eldri en þið þá hef ég nú þegar lært að lifa með komandi elli, en ekki þið, nei þið þurfið að ganga í gegnum ellidóm - byrjar strax á morgun.
vöfflurnar voru góðar, kakan fín sko en bestur var rjóminn, ekki oft sem maður fær kremrjóma.
mmmnamm
Skrifa ummæli