Það er nefnilega það. Það eru bara að koma jól eftir 1 mánuð. Fórum á sunnudaginn að baka piparkökur og fleyra hjá tengdó. Reyndar sá hún eiginlega um allan baksturinn og við fengum að gera allt það skemmtilega....drullumalla með degið :) Fengum svo heim með okkur FULLT af gúmmilaði sem mér var samt bannað að snerta fyrr en á aðventu. Sem betur fer ekkert svo langt í hana. Spurning samt hvað gerist þegar maður er einn heima og enginn að horfa.....hihihii.
Ég og Húnbogi fórum í dag upp í Mosó um hádegi og vorum fram yfir kvöldmat. Þar sýndi hann allar sýnar kúnstir og meira til. Klifraði ofaní kassa, jarmaði og fleyra. Svo fekk hann sama kvöldmat og við hin og fannst bara gott. Það var grýta og meðlæti.
Um helgina var ég að útbúa jólagjöfina hans Húnboga. En það er rugguhestur sem ég smíðaði í barnaskóla (ég giska á 10 ára bekk). Ég sat og lá á gólfin og málaði hann allan upp á nýtt og ætla gera voða flottan en ó ó og æ æ.! Mjöðmin mín! Magnaðist upp þessi voðalegi verkur sem ég fekk þegar ég var ólétt og leiddi alveg niður í fót og gekk ég um eins og gömul kona með gigt á rigningardegi. Greinilega ekki búin að jafna mig þó að 10 mánuðir séu liðnir, eða kannski er ég bara orðin gömul.....ó ó og æ æ æ æ!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
iss, maður fórnar líkamanum fyrir þessi grey ! ég er líka mjaðmaveik, fór í ljós í gær og varð að velta mér úr bekknum!!! Eins gott að enginn sá til !
Hrafnkell segir: "bið að heilsa Húbbúbba"
pff.. ekki er ég nú sona "aum" tíhíhí..:D
en já.. pant að fá að smakka piparkökur hjá ykkur.. ;P
p.s. við erum reyndar að fara bráðum að baka solleis líka... kem kannski með smakk til ykkar.. ;D
kv.guðný
Skrifa ummæli