fimmtudagur, desember 11, 2008

Allt að verða búið

Það kom ekki meiri hiti....mældi hann reyndar ekkert aftur en fannst það ástæðulaust. Hann var ekki heitur. En er enn listarlítill. Við slepptum því að fara í sund í dag....stór fílukall yfir því.
Fór á síðustu æfinguna á dag fyrir jólafrí og skal segja stolt frá því að ég vann hring.(sú síðasta sem stendur eftir á lífi, allir á móti öllum) Braut líka sverðið mitt en held að það hafi verið brotið fyrir nokkru...fannst það alltaf skrölta eitthvað í haldinu. Einn félagi úr rimmugýg ætlar að gera við það fyrir mig.
Fór í Fjarðarkaup að tjekka á vinnunni minni. Fékk að heyra það að það hafi ekki verið búist við mér aftur!!!! Hvað er málið...ég sagði aldrei upp og sagði öllum sem vildu heyra að ég ætlaði að koma aftur. Þau þarna ætla að skoða hvað þau geta gert og hringja í mig.....sure.
Pínu pirruð yfir þessu en hey...ég vann hring:))))

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ekki búist við þér aftur?? WTF!!! segi ég nú bara, þetta er nú bara fyrirsláttur, enda áttu þinn rétt. spurning svo hvort þau segja þér svo upp þegar þú byrjar. Ojsen pojsen...

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.