Æ kan dú ðí æbrá þingí
Jólinn nálgast nú óðum og finnst mér eins og listin sem ég bjó til fyrir jóinn sem á að klára sé endalaust langur. En það reddast nú, þetta er aðalega tiltektin sem er eftir, og nokkur svona smáatriði sem ég vil að sé gert áður en hátíðin gengur í garð.
Nú er aðeins mánuður (plús einn dagur) í afmælið hans Húnboga. Þvílíkur merkisatburður gerist nú ekki oft og eins gott að fólk fari að huga að því strax. Það er að sega það merkilega fólk sem fær að vera viðstatt svo merkilegan viðburð!!
Húnbogi fékk að fara í sitt fyrsta froðubað í gær og má segja að það hafi honum funndist meira en lítið furðulegt. Og ekki var hún nú góð á bragðið. EN það var samt alveg ægilega gaman og mikið sullað og skvett. Það fylgir með eitt myndskeið þessu til heiðurs hér til hægri (mín vinstri)
3 ummæli:
jáhh..það var stuð á fjörukránni...
:D
verðum að endurtaka þetta aftur við tækifæri..:P
wow..aldeilis fjör á honum húnboga í froðubaðinu.... hehe..
kv.guðný
uuuu vorum við á Fjörukránni !!!
sigga
Skrifa ummæli